Spurning með sálina Eiður Þór Árnason skrifar 7. júlí 2026 18:22 Steypubílinn var fjarlægður úr ánni síðdegis í dag. Vegagerðin „Þetta er mjög leiðinlegt mál. En aðalatriðið er náttúrulega að hann er ómeiddur maðurinn en svo er spurning með sálina. Mönnum hlýtur að bregða við þetta.“ Þetta segir Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar, en steypubíll í eigu fyrirtækisins lenti úti í Þjórsá í gærkvöldi. Lítið sé vitað um orsakir óhappsins að svo stöddu.
Gögn fyrirtækisins sýni að ökumaðurinn hafi ekki verið að keyra á óeðlilegum hraða þegar hann fór út af brú á Þjórsárdalsvegi nærri Sultartangavirkjun. „Þannig að þetta lítur út eins og óútskýrt slys. Ég held að við verðum eiginlega að segja það þannig,“ bætir Björn við. Ökumaðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur um klukkan átta í gærkvöldi þar sem hann var lagður inn á sjúkrahús. Klippa: Grafa snýr steypubílnum við í Þjórsá Björn segir að starfsmaðurinn hafi dvalið á Landspítala í nótt en hafði ekki upplýsingar um það hvort hann hafi verið útskrifaður. Bílstjórinn hafi verið orðinn kaldur en Björn viti ekki til þess að neitt alvarlegra hafi amað að honum. Steypubíllinn var fjarlægður úr Þjórsá á þriðja tímanum í dag. Björn segist ekki hafa upplýsingar um það hvort olía eða annað efni úr bílnum kynni að hafa farið út í ána: „Það er bara verið að kanna þetta.“ Hann á von á því að bíllinn sé ónýtur: „Ég held að það séu nánast engar líkur á að hann lifi af að vera í vatni í hálfan sólarhring eða meira. Það myndi koma mér verulega á óvart.“ Atvikið verði skoðað af tryggingafélagi Steypustöðvarinnar. Tilkynning barst um óhappið á áttunda tímanum í gærkvöld og var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar komin á staðinn um átta mínútur yfir átta, að sögn upplýsingafulltrúa hennar. Lögregla og björgunarsveit tóku einnig þátt í aðgerðum og minnkaði Landsvirkjun flæði úr Sultartangalóni í ánna, bæði til að minnka líkur á því að bílinn færðist og til að greiða fyrir aðgerðum í dag þegar steypubílinn var færður á land. Vegagerðin lokaði fyrir umferð um brúnna þar sem bíllinn fór út af í gærkvöldi vegna skemmda á brúarhandriði. Gert er ráð fyrir að viðgerð taki nokkra daga og leiðin verði lokuð eitthvað fram í vikuna. Hjáleið er um Landveg (26) til að komast í Landmannalaugar eða á Sprengisandsleið. Skemdir urðu á brúnni. Vegagerðin Fréttin hefur verið uppfærð.
Samgönguslys Skeiða- og Gnúpverjahreppur Rangárþing ytra Tengdar fréttir Steypubíllinn kominn úr ánni Steypubíll sem lenti í Þjórsá í gærkvöldi hefur verið fjarlægður úr ánni. Þetta segir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar en ökumaður bílsins fór út af brú á Þjórsárdalsvegi nærri Sultartangavirkjun. Bíllinn er í eigu Steypustöðvarinnar samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. 7. júlí 2026 16:15 Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Brúin yfir Þjórsá á Þjórsárdalsvegi verður lokuð næstu daga vegna skemmda á brúarhandriði. Umferðaróhapp varð á brúnni í gærkvöldi. 7. júlí 2026 10:05 Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi um klukkan hálf átta í kvöld vegna steypubíls sem hafði lent út í Þjórsá. Ökumaður hans var orðinn kaldur og því fluttur á Landspítala til aðhlynningar. 6. júlí 2026 21:07 Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira
Steypubíllinn kominn úr ánni Steypubíll sem lenti í Þjórsá í gærkvöldi hefur verið fjarlægður úr ánni. Þetta segir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar en ökumaður bílsins fór út af brú á Þjórsárdalsvegi nærri Sultartangavirkjun. Bíllinn er í eigu Steypustöðvarinnar samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. 7. júlí 2026 16:15
Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Brúin yfir Þjórsá á Þjórsárdalsvegi verður lokuð næstu daga vegna skemmda á brúarhandriði. Umferðaróhapp varð á brúnni í gærkvöldi. 7. júlí 2026 10:05
Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi um klukkan hálf átta í kvöld vegna steypubíls sem hafði lent út í Þjórsá. Ökumaður hans var orðinn kaldur og því fluttur á Landspítala til aðhlynningar. 6. júlí 2026 21:07