„Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 7. júlí 2026 11:09 Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, er alsæll með stofnun hins nýja félags. Samsett Haraldur Ólafsson, formaður Heimssýnar, sótti stofnfund samtakanna Áfram Ísland í gær. Bæði félög munu tala fyrir málstað nei-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Haraldur fagnar stofnun samtakanna: „Þetta er algjörlega dásamlegt, bestu tíðindi vikunnar.“
Haraldur segir að á fundinum hafi mátt finna margt fólk úr Heimssýn. Fram kom í máli Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, fundarstjóra stofnfundarins, að samtökin myndu vera regnhlífarsamtök á nei-hliðinni. Fréttastofa bar ummælin undir Harald. „Nei, það er ekkert félag undir neinu öðru, hann tekur bara svona til orða.“ Heimssýn hefur barist gegn Evrópusambandsaðild frá árinu 2002 og á sér því djúpar rætur. Haraldur setur sig síður en svo á móti stofnun hins nýja Áfram Ísland. „Það er mikill styrkur að fá svona félag til viðbótar.“ Félögin hittast vikulega og stilla saman strengi Haraldur segir að fólk úr fleiri samtökum á nei-hliðinni, líkt og Til vinstri við ESB, hafi líka mætt á fundinn. Hann ber upp skemmtilega myndlíkingu fyrir úrval samtaka nei-megin í umræðunni: „Þetta er eins og á tónlistarhátíð, það eru tíu hljómsveitir sem spila, og auðvitað eru menn að bera saman hljómsveitirnar og svona, en það er allt í góðu, og ef einhver hljómsveit vill spila öðruvísi en hinar þá gerir hún það. Það er auðvitað alltaf einhver munur á svona félögum en við sjáum hvernig það þróast næstu vikur.“ Haraldur greinir frá því að samstarf félaganna sé náið. „Þessi félög hittast alltaf einu sinni í viku. Það er spjallað um hvað á að gera og ef það eru sameiginlegir fletir þá er unnið saman. Síðan eru auðvitað allir að tala við alla símleiðis, það er svoleiðis.“ Hr. Ólafur Ragnar Grímsson hélt þrumuræðu á stofnfundinum.Vísir/Sigurjón Ný samtök laði fleiri að Haraldur segir að nú sé baráttan virkilega farin af stað. Á fundum Heimssýnar fram til þessa hafi þau séð milli hundrað og hundrað og fimmtíu manns mæta en á fundinum í gær hafi fjöldinn slagað upp í þúsund. „Það koma þarna margir nýir inn, það er ljóst. Þessir fundir undanfarnar vikur, það mæta kannski hundrað tvö hundruð manns, ákveðinn harður kjarni, en nú er boðskapurinn orðinn þannig að þetta nær til stærri hóps. Það er stígandi í þessari baráttu.“ Haraldur segir stemninguna góða og allir berjist fyrir málstaðnum af heilli hugsjón. Ef til þess kæmi að landið gengi í ESB væri ákvörðunin óafturkræf. „Ekkert annað í pólitík hefur skipt jafn miklu máli, við tökum þetta ekkert aftur.“ Málið sé hreinlega fordæmalaust. „Við rifumst mikið um hermálið, við getum rifist um hvalveiðar og alls konar en þarna erum við að tala um gjörning sem er gríðarstór. Menn eiga ekki að flana að neinu í því sambandi. Þetta er auðvitað stórt skref í átt frá lýðræði, að framselja vald til útlanda. Það er það sem allir þarna hafa áhyggjur af.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Félagasamtök Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Sjá meira