NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Kjartan Kjartansson skrifar 7. júlí 2026 09:45 Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, með Donald Trump í Hvíta húsinu. Vísir/EPA Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi haft á réttu að standa í gagnrýni sinni á evrópsk bandalagsríki og með því að ráðast á Íran. Hann segir að sér líki vel við forsetann.
Mark Rutte, fyrrverandi forsætisráðherra Hollands og núverandi framkvæmdastjóri NATO, hefur gengið lengra en flestir aðrir evrópskir leiðtogar í að beita smjaðri til þess að friðþægja Trump. Frægt var þannig þegar hann kallaði Trump „pabba“ sem hefði agað ódæla evrópska bandamenn. Enn eys Rutte Trump lofi í aðdraganda leiðtogafundar bandalagsins sem hefst í Tyrklandi í dag. Í viðtali við evrópska blaðið Politico segir hann að það hafi verið rétt hjá Trump að þrýsta á Evrópuríki að verja meira fé til varnarmála. „Mér líkar einfaldlega við manninn. Mér finnst það frábærar fréttir sem hann er að gera fyrir NATO,“ segir Rutte um Trump sem hefur dregið verulega úr áherslu Bandaríkjanna á varnir Evrópu og hótað að taka Grænland með hervaldi. Evrópuríki hafa aukið verulega varnarútgjöld sín undanfarið í skugga innrásarstríðs Vladímírs Pútín Rússlandsforseta í Úkraínu og ítrekaðra skemmdarverka og upplýsingahernaðar hans gegn Evrópu. Búist er við að mörg ríki greini frá stórum vopnakaupum og auknum framlögum á meðan á leiðtogafundinum stendur. „Trump forseta er í raun að takast það sem bandarískir forseta hafa reynt frá tíma Eisenhower sem er að jafna varnarútgjöld á milli Bandaríkjanna og Evrópu,“ segir Rutte. Evrópa hafi leikið lykilhlutverk í árásum á Íran Þá segir framkvæmdastjórinn að þó að Trump hafi gramist sum Evrópuríki, sérstaklega Spánn, neituðu að aðstoða við árásir á Íran þá hafi þau leikið lykilhlutverk þar. „Bandaríkin hefðu líklega ekki getað staðið að Sögulegri heift [bandarískt heiti á aðgerðunum gegn Íran] án þess að nota Evrópu sem stökkbretti til þess að sýna mátt sinn og megin,“ segir Rutte og bendir á að Rúmenar hafi lokað stærsta borgaralega flugvelli sínum til þess að gera bandarískum herflugvélum kleift að lenda og taka á loft.
NATO Holland Donald Trump Bandaríkin Tyrkland Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira