Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Valur Páll Eiríksson skrifar 6. júlí 2026 20:24 Það voru læti í leiknum á laugardagskvöldið var. Lætin voru einnig mikil í þingkonu frá Paragvæ og ummæli hennar hafa verið harðlega gagnrýnd. Richard Sellers/Sportsphoto/Allstar via Getty Images Kylian Mbappe hefur lýst paragvæska öldungadeildarþingmanninum Celeste Amarilla sem „fyrirlitlegum kynþáttahatara“ eftir að hún lét ljót ummæli falla um franska fyrirliðann á samfélagsmiðlum.
Franska knattspyrnusambandið hefur tilkynnt ummæli Amarilla til saksóknaraembættisins „með það í huga að fara í málsókn“. Ekki er þó ljóst hvar slíkt saksókn færi fram. Frakkland sigraði Paragvæ í hörðum leik, 1-0, í 16-liða úrslitum HM á laugardaginn, þar sem Mbappe skoraði eina markið úr vítaspyrnu. Einu mistök Paragvæ að gefa honum ekki einn á kjammann Celeste Amarilla, er 61 árs lögfræðingur sem situr í öldungadeild þings Paragvæ, gagnrýndi leikmann Real Madrid á fjölmörgum samfélagsmiðlum. Í færslu á Instagram á laugardagskvöldið deildi hún tveimur myndum af Mbappe. Þar kallaði Amarilla hann „nýlendubúa frá Kamerún, sem reyndi af öllu hjarta að þykjast vera Frakki“ og kallaði hann „hrokafullan og ljótan“. „Hann var taugaóstyrkur og hræddur allan leikinn. Alveg eins og restin af liðinu hans. Þeim tókst ekki að skora eitt einasta mark og þeir unnu með minnsta mun.“ „Það eina sem má setja út á landslið Paragvæ er að þeir gáfu honum ekki einn á kjammann eftir að leiknum lauk. Og ég er ekki einu sinni fótboltaaðdáandi.“ Saug kókoshnetur og lærði af simpönsum Hún hafði áður gagnrýnt Mbappe á X fyrr á laugardagskvöldið og vitnaði í færslu þar sem framherjinn fagnaði fyrir framan markvörð Paragvæ, Orlando Gill: „Þessi skepna lærði aldrei að skrifa. Í stað brjóstamjólkur saug hann á kókoshnetum og menntuðustu verurnar sem hann hlustaði á voru simpansar.” „Þú hefðir átt að gefa honum fingurinn, Orlando Gill.“ Amarilla hefur setið í öldungadeild Lýðveldisins Paragvæ frá árinu 2023 og hefur starfað í stjórnmálum í landinu frá árinu 1982. Eins og áður segir vann Frakkland 1-0 sigur á Paragvæ og mætir Marokkó í 8-liða úrslitum á Foxborough-vellinum á fimmtudaginn kemur.
HM 2026 í fótbolta Paragvæ Frakkland Franski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Sjá meira