Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar 5. júlí 2026 18:31 Á Sprengisandi í morgun benti Kolfinna Jóhannesdóttir, skólastjóri Kvennaskólans, á að þegar námskrár eru mjög opnar skipti námsgögn lykilmáli. Vönduð námsgögn og verkefni geti stuðlað að meiri jöfnuði og samræmi, ekki síst fyrir nýja kennara. Hún benti jafnframt á að um 70% kennara verji tíma í að semja námsgögn þegar sá tími gæti að hluta farið í kennslu. Þarna vaknar einföld spurning: Ef svona margir kennarar eru að búa til námsefni, hvar er allt þetta efni? Svarið er líklega að stór hluti þess sé ósýnilegur. Efnið situr í skýinu, inni í námsumsjónarkerfum skóla eða í verkefnamöppum. Sumt hefur verið þróað og endurbætt árum saman. Samt fer það sjaldan út fyrir skólann eða tiltekinn áfanga. Þannig geta kennarar um allt land verið að vinna sömu vinnuna hver í sínu horni. Vandinn er þó ekki leystur með því einu að segja kennurum að deila efninu. Gott kennsluefni verður ekki sjálfkrafa að góðu námsefni fyrir aðra skóla. Það þarf ritstjórn, faglegan yfirlestur, uppfærslu, prófun, hönnun og tæknilega vinnu. Höfundar þurfa líka stuðning og tækifæri til að læra hvernig góð hugmynd verður að vönduðu og útgáfuhæfu efni. Ég hef unnið að gerð og útgáfu námsgagna í fjölda ára. Útgáfufyrirtækið á rætur í kennslustofunni og hefur þróast með hugmyndum sem hafa kviknað í vinnu með nemendum, rannsóknum, samfélagsbreytingum og nýjum áherslum innan félagsvísinda. Sú reynsla hefur sýnt mér hversu löng og flókin leiðin getur verið frá góðri hugmynd að útgáfuhæfu námsefni. Kennarar fá oft bestu hugmyndirnar í kennslustofunni og í beinni vinnu með nemendum. En þeir sem vilja þróa þær áfram þurfa oft sjálfir að afla sér þekkingar á ritstjórn, útgáfu, hönnun, tæknimálum og miðlun, auk þess að tryggja fjármögnun. Það getur verið sérstaklega krefjandi á örmarkaði, þar sem nýjar hugmyndir þurfa oft tíma til að verða sjálfbærar. Góð hugmynd nær því oft ekki út fyrir kennslustofuna. Þarna er vannýtt tækifæri. Þróunarsjóður námsgagna þarf aukið fjármagn og sterkari faglega umgjörð. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu þarf að gegna skýrara hlutverki í að styðja og hvetja kennara og höfunda til að þróa og gefa út efni. Frumkvæðið er oft til staðar hjá kennurum, en skýran farveg frá hugmynd til útgáfu vantar. Á litlum íslenskum markaði fyrir námsefni skapast ekki sjálfkrafa nægilega sterkir hvatar til útgáfu. Þess vegna þarf ríkið að styðja einkaframtak og nýsköpun með raunhæfum fjárhagslegum hvötum, faglegri umgjörð og aðgangi að sérfræðingum. Við þekkjum slíka hugsun úr kvikmyndagerð, þar sem opinber stuðningur hjálpar hugmyndum og einkaframtaki að verða að veruleika. Sama hugsun ætti að eiga við um námsgagnagerð. Miðstýring getur skapað ramma, aukið samræmi og tryggt stuðning. En sveigjanleikinn verður líka að vera til staðar svo hugmyndir úr kennslustofunum fái að vaxa. Íslenskt skólakerfi glímir ekki aðeins við skort á námsgögnum. Ríkisvaldið þarf að skapa skýran farveg sem gerir stofnunum kleift að styðja námsgagnahöfunda frá fyrstu hugmynd til útgáfu og miðlunar. Líklega leynist víða gott námsefni sem nær ekki lengra. Við höfum ekki efni á að láta það hverfa inn í skýið. Höfundur er kennari og stofnandi stafbok.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bogi Ragnarsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar