Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Smári Jökull Jónsson skrifar 3. júlí 2026 19:05 Brúin sem innbrotsþjófurinn keyrði yfir er ekki breið og aðeins gerð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Vísir/Ívar Fannar/Smári Jökull Æsileg atburðarás fór af stað í kjölfar innbrots í apótek í vikunni. Innbrotsþjófurinn flúði á bíl með lögregluna á hælunum og keyrði meðal annars yfir göngubrú. Lögreglufulltrúi segir eftirfarir erfið verkefni sem geti skapað mikla hættu.
Tilkynnt var um innbrot í Efstaleitisapótek um hálf níu á miðvikudagskvöld. Innbrotsþjófurinn flúði á Hopp deilibíl og hóf lögregla eftirför í kjölfarið. Á myndbandi sést bíllinn keyra á móti umferð út á Kringlumýrarbrautina við Hamrahlíð með lögreglubíl á eftir sér. @teddibthh Hopp bíll 😭😭😭 #fyrirþig #iceland #hopp #🇮🇸 #carchase ♬ original sound - teddibthh Eftir innbrotið í Efstaleiti keyrði innbrotsþjófurinn síðan í átt að Fossvoginum og beygði að göngubrú sem liggur yfir Kringlumýrarbraut. Þar keyrði hann upp á gangstétt og yfir göngustíg eins og ummerkin í grasinu sýna. Hann tók í kjölfarið skarpa beygju og keyrði yfir göngubrúna. Þegar hann var kominn yfir í Fossvoginn hinu megin var hann síðan handtekinn eftir þennan mikla glæfraakstur. Hjólförin í grasinu við göngubrúnna voru áberandi.Vísir/Smári Jökull Lögregla segir að sést hafi til tveggja manna í innbrotinu en aðeins er búið að handtaka þann sem flúði á bílnum. Á brúnni sem liggur yfir Kringlumýrarbraut er aðeins gert ráð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendum en ekki bílum. Því eins og sjá má, er hún ekkert sérlega breið. Göngubrúin yfir Kringlumýrarbraut er ekki breið og aðeins gerð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.Vísir/Smári Jökull Fossvogurinn er vinsælt útivistarsvæði og ljóst að akstur á göngustígum og göngubrú skapar mikla hættu. Lögreglufulltrúi sem kemur að verklegri kennslu lögregluþjóna segir hana meðal annars snúa að þjálfun í akstri. „Þetta eru mjög erfið verkefni vegna þess að það er mikill hraði í þessu, það er mikið álag og það er mjög lítill tími til að taka ákvarðanir. Það getur verið mikil hætta á ferðum bæði fyrir almenning og lögreglumenn,“ segir Hlynur Gíslason lögreglufulltrúi hjá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar. Hlynur Gíslason er lögreglufulltrúi hjá mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar.Vísir/Ívar Fannar Mennta- og starfsþróunarsetrið hefur meðal annars umsjón með verklegri fræðslu lögreglunema sem og endurmenntun starfandi lögreglumanna. Hlynur segir að eftirför sem þessi sé ávallt rýnd til gagns og þá getur lögreglan nýtt hjálpartæki líkt og naglamottur og dróna ef þörf er á. „Svo er það öryggi almennings sem er aðalatriðið. Ef öryggi almennings er ógnað, hversu alvarlegar aðgerðir þarf að fara út í? Minna brot, minni aðgerðir. Stærra brot, stærri aðgerðir,“ bætir Hlynur við.
Lögreglumál Hjólreiðar Deilihagkerfi Reykjavík Bílaleigur Lögreglan Tengdar fréttir Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Karlmaður sem var handtekinn í gær vegna gruns um innbrot í Efstaleitisapótek flúði vettvang á Hopp-deilibíl. Maðurinn var handtekinn eftir eftirför í bíl og á fæti. 2. júlí 2026 09:13 Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira
Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Karlmaður sem var handtekinn í gær vegna gruns um innbrot í Efstaleitisapótek flúði vettvang á Hopp-deilibíl. Maðurinn var handtekinn eftir eftirför í bíl og á fæti. 2. júlí 2026 09:13