Quang Le fer ekki langt Sigurgeir Þorkelsson skrifar 3. júlí 2026 12:14 Það vakti mikla athygli þegar Quang Le festi kaup á Herkastalanum árið 2022 fyrir hálfan milljarð króna. Þær fréttir bárust síðan í fyrra að hann hefði selt hann frá sér fyrir 865 milljónir króna. Vísir Landsréttur hefur staðfest áframhaldandi farbann yfir Quang Lé til föstudagsins 25. september næstkomandi. Quang er sakborningur í máli þar sem meðal annars er til rannsóknar gífurlega umfangsmikið mansal.
Greint var frá því þann 5. mars árið 2024 að miðlæg rannsóknardeild lögreglu hefði lagst í umfangsmiklar aðgerðir víða um land vegna gruns um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi. Aðgerðir fóru fram á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Suðurnesjum og Norðurlandi. Quang sætti upprunalega gæsluvarðhaldi í rúma þrjá mánuði fram til 13. júní. Hann hefur síðan þá, í rúm tvö ár, sætt farbanni og mun gera áfram næstu þrjá mánuði. Talin er hætta á að Quang flýi land til að forðast fullnustu refsingar sæti hann ekki farbanni. Í úrskurðinum segir að rökstuddur grunur sé um að hann hafi framið brot sem fangelsisrefsing liggi við. Þar kemur einnig fram að rannsókn málsins sé á lokametrunum og að málið sé afar umfangsmikið. Grunur sé um skipulagða glæpastarfsemi sem teygi anga sína yfir landamæri og stóð yfir um margra ára skeið. Þá hafi fjöldi einstaklinga annaðhvort stöðu brotaþola, alls tuttugu og níu, eða stöðu sakbornings. Það sé af slíkum ástæðum sem leyfi sé veitt fyrir áframhaldandi farbanni þrátt fyrir að það hafi staðið yfir í rúm tvö ár en farbann er þvingunarráðstöfun sem ekki má standa yfir lengur en nauðsynlegt er miðað við eðli og umfang máls.
Mál Quangs Le Lögreglumál Mansal Tengdar fréttir „Hvað er að lögreglunni?“ Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður og verjandi Quang Le, segir lögreglu hafa farið langt yfir strikið þegar ráðist var inn á heimili 18 ára sonar Quang Le og 78 ára móður hans klukkan 6:30 á föstudagsmorgun. Hann segir að tengsl fólksins við Quang Le réttlæti ekki aðgerðir af þessu tagi. 30. mars 2026 11:22 Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Landsbankann af kæru Quang Le. Le, sem er meðal annars grunaður um mansal, var synjað um að stofna bankareikning og ákvað því að stefna Landsbankanum. 12. mars 2026 16:30 Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ „Það er bara ekki sama hvort það er Jón eða séra Jón, eða hvort það er Íslendingur eða Víetnami. Það gilda augljóslega ekki sömu reglur,“ segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður og verjandi Quangs Le, sem sætir um þessar mundir rannsókn í tengslum við eitt stærsta mannsalsmál sem komið hefur upp hér á landi – og átti upptök sín í matvælageymslu í Sóltúni. 9. febrúar 2026 08:46 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira
„Hvað er að lögreglunni?“ Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður og verjandi Quang Le, segir lögreglu hafa farið langt yfir strikið þegar ráðist var inn á heimili 18 ára sonar Quang Le og 78 ára móður hans klukkan 6:30 á föstudagsmorgun. Hann segir að tengsl fólksins við Quang Le réttlæti ekki aðgerðir af þessu tagi. 30. mars 2026 11:22
Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Landsbankann af kæru Quang Le. Le, sem er meðal annars grunaður um mansal, var synjað um að stofna bankareikning og ákvað því að stefna Landsbankanum. 12. mars 2026 16:30
Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ „Það er bara ekki sama hvort það er Jón eða séra Jón, eða hvort það er Íslendingur eða Víetnami. Það gilda augljóslega ekki sömu reglur,“ segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður og verjandi Quangs Le, sem sætir um þessar mundir rannsókn í tengslum við eitt stærsta mannsalsmál sem komið hefur upp hér á landi – og átti upptök sín í matvælageymslu í Sóltúni. 9. febrúar 2026 08:46