Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 2. júlí 2026 09:30 Ráðuneyti menntamála birti nýlega könnun og samantekt á sérhæfingu kennara og setur fram að um kerfislægan veikleika sér að ræða. Sannarlega um áskorun að ræða sem snýst um miklu meira en einstaka skóla eða sveitarfélag. Nirðustöðurnar varpa fyrst og fremst ljósi á hvernig sérþekking kennara nýtist í kennslu. Mikill meirihluti kennara er með kennaramenntun sem er styrkleiki. Engu að síður kennir aðeins hluti kennara þær námsgreinar sem þeir hafa sérhæft sig í. Á það sérstaklega við um; íslensku, stærðfræði, náttúrugreinar og íslensku sem annað tungumál. Mikil fagmennska Það er mikilvægt að gera skýran greinarmun á hæfni kennara og sérhæfingu þeirra. Könnunin segir ekki að kennarar séu óhæfir eða að þeir geti ekki kennt greinar utan síns sérnáms. Mikil fagmennska er ríkjandi í skólum landsins og árangur eftir því. Hinsvegar má lesa það út úr þessum niðurstöðum að þegar slíkt verður almenn regla fremur en undantekning myndast kerfislæg áskorun sem getur haft áhrif á gæði menntunar til lengri tíma. Ráðstafa kennurum Skýringin liggur ekki hjá kennurum sjálfum heldur þróun kerfisins. Kennaraskortur, fámennir skólar, breytt aldurssamsetning kennarastéttarinnar, takmarkað framboð sérhæfðra kennara í ákveðnum greinum og skipulag skólastarfs hafa leitt til þess að skólastjórnendur þurfa oft að ráðstafa kennurum í þær greinar sem þarf að manna hverju sinni. Þetta á sérstaklega við í smærri sveitarfélögum þar sem einfaldlega er ekki raunhæft að hafa sérfræðing í öllum námsgreinum. Sérþekking kennara Hverjar eru framtíðarþarfir samfélagsins? Á sama tíma og sífellt meiri áhersla er lögð á STEM-greinar, gervigreind, tækni, nýsköpun og vísindi sýna gögnin að sérhæfing kennara í stærðfræði og náttúrugreinum er tiltölulega lítil. Ef samfélagið ætlast til þess að fleiri ungmenni velji raunvísindi, verkfræði eða tæknigreinar síðar á lífsleiðinni þarf grunnurinn að vera sterkur strax í grunnskóla. Þar skiptir sérþekking kennara máli. Ekki sem eini mælikvarðinn á góða kennslu heldur sem mikilvægur þáttur í að byggja upp dýpri skilning, faglegt öryggi og það sem skiptir mestu máli; áhuga nemenda. Ekki einföld skýring En það þarf að gæta þess að draga ekki of víðtækar ályktanir. Könnunin sýnir ekki fram á að skortur á sérhæfingu skýri einn og sér námsárangur nemenda eða niðurstöður alþjóðlegra mælinga. Menntun er flókið samspil fjölmargra þátta; þar sem kennsluhættir, stuðningur við nemendur, skólamenning, foreldrasamstarf, námsumhverfi og félagslegar aðstæður skipta miklu máli. Sérhæfing kennara er einn þáttur í stærra samhengi en ekki einföld skýring á öllum áskorunum skólakerfisins. Kennaramenntun Áskorunin snýst ekki aðeins um að fjölga kennurum heldur einnig um að fjölga kennurum með sérhæfingu í lykilgreinum og skapa aðstæður þar sem sérþekking nýtist sem best. Það kallar á markvissa uppbyggingu kennaramenntunar sem er byggð á þörfum kerfisins ekki háskólanna, öfluga símenntun og aðgerðir sem gera skólum um allt land kleift að laða að og halda í sérhæft fagfólk. Greinamiðuð símenntun, örnámsleiðir, fjármögnuð símenntun, fagleg lærdómssamfélög og rafræn kennsla eru leiðir sem er verið að nýta og hægt að gera meira af. Námsstyrkir, niðurfelling námslána, húsnæðisstyrkur, flutningsstyrkur, starfsþróunarleiðir og samstarf skóla eru síðan leiðir sem ætti að kanna til að frá fólk um allt land til kennslu. Menntakerfið hefur breyst Þegar horft er á stóru myndina er ekki um gagnrýni á kennara að ræða heldur áminningu um að menntakerfið verði að þróast í takt við þær kröfur sem samfélagið gerir til þess. Ef Ísland ætlar að byggja framtíð sína á þekkingu, nýsköpun og tækniframförum þarf að fjárfesta markvisst í mannauðinum sem leggur grunninn að þeirri framtíð; kennurunum sjálfum. Hvað vill samfélagið frá skólanum? Samfélagið hefur á undanförnum tuttugu árum bætt við verkefnum og ábyrgð á skóla, stjórnendur og kennara án þess að taka neitt út eða aukið tíma eða mannafla til að sinna því. Ef við tökum nokkur dæmi; aukin áhersla á félags- og tilfinningafærni, aukin fjölbreytni nemendahópsins, stafræn innleiðing, sífellt fleiri samfélagsverkefni eins og umferðarfræðslu, lýðheilsa, umhverfismennt og fjármálalæsi, meiri skráning og eftirfylgni og auknar væntingar um einstaklingsmiðað nám. Vandinn er að hlutverk skólans hefur stækkað gríðarlega. Kennarar eiga að sinna fleiri verkefnum en áður og tíminn í skóladeginum hefur ekki stækkað í sama mæli. Hlutverk skóla Erum við að ætlast til þess að grunnskólinn leysi sífellt fleiri samfélagsleg verkefni án þess að endurmeta hvað skólinn á fyrst og fremst að gera? Ef allt verður forgangsmál verður ekkert raunverulegt forgangsmál. Hver er kjarninn í menntun framtíðarinnar? Viljum við sífellt bæta við hlutverk skólans eða styrkja fyrst grunninn sem allt annað byggir á? Er skólinn orðinn lausn við öllu? Höfundur er kennari og skólastjórnandi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar