Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar 2. júlí 2026 09:00 Kjarni fullveldis er ekki aðeins rétturinn til að eiga fána, þing og ríkisstjórn. Hann felst í því hver hefur síðasta orðið þegar hagsmunir ríkisins rekast á vilja annarra. Ef Grænland yrði sjálfstætt ríki en Ísland gengi í Evrópusambandið yrðu þjóðirnar tvær í grundvallaratriðum á ólíkum stað gagnvart fullveldi og sjálfsákvörðunarrétti. Staða Grænlands sem sjálfstæðs ríkis Grænlendingar eru nú þjóð með viðurkenndan rétt til sjálfsákvörðunar samkvæmt lögum um sjálfstjórn Grænlands. Þar er jafnframt gert ráð fyrir að ákvörðun um sjálfstæði sé tekin af grænlensku þjóðinni og að samið verði við dönsk stjórnvöld um framkvæmdina. Sjálfstætt Grænland hefði því fullt ríkisvald yfir eigin landsvæði, eigin stjórnarskrá, ríkisfangi, auðlindum og utanríkissamskiptum. Sjálfstætt Grænland gæti sjálft ákveðið hvaða alþjóðasamninga það gerði, hvaða skuldbindingar það tæki á sig og hvaða samstarfi það hafnaði. Það gæti samið um varnarmál, gjaldmiðil, fiskveiðar, auðlindanýtingu, fjárfestingar og markaðsaðgang eftir eigin mati. Grænland gæti til dæmis gert fríverslunarsamninga við Evrópusambandið, Bretland, Bandaríkin, Kanada eða önnur ríki, með þeim skilmálum sem grænlensk stjórnvöld teldu þjóðinni hagfelldasta. Slíkir samningar gætu vissulega verið erfiðir og samningsstaða lítils ríkis væri ekki alltaf sterk. En ákvörðunin um hvort samið væri, við hvern og á hvaða kjörum, væri grænlensk. Grænlendingar myndu ráða. Staða Íslands innan ESB Ísland myndi halda formlegri stöðu sinni sem sjálfstætt ríki þótt það gerðist aðili að ESB. Alþingi, ríkisstjórn, dómstólar og íslensk stjórnarskrá hyrfu ekki. En það er ekki það sama að halda formlegu ríkisnafni og að hafa fullt og óskorað vald til að taka eigin ákvarðanir. Ísland innan ESB stæði allt öðruvísi að vígi en sjálfstætt Grænland. Tollabandalag og sameiginleg viðskiptastefna falla undir einkaréttarsvið ESB. Það þýðir að aðildarríki geta ekki hvert fyrir sig samið eigin fríverslunarsamninga eða mótað sjálfstæða tollastefnu gagnvart ríkjum utan sambandsins. ESB semur og gerir slíka samninga fyrir hönd aðildarríkjanna. æti Ísland hefði hjáróma rödd innan stofnana ESB. Íslenskur ráðherra gæti tekið þátt í ráðherraráðinu og íslenskir fulltrúar sætu á Evrópuþingi. En „sæti við borðið“ og hjáróma rödd er ekki það sama og neitunarvald. Þar sem ákvarðanir eru teknar með auknum meirihluta getur Ísland orðið undir, þótt Alþingi, ríkisstjórn og meirihluti þjóðarinnar séu andvíg niðurstöðunni. Sama á við um löggjöf. Á sviðum þar sem ESB hefur einkarétt eða hefur tekið til starfa á grundvelli sameiginlegra valdheimilda verður Alþingi ekki lengur eitt um að setja reglurnar. Aðildarríki geta tekið þátt í ferlinu, reynt að hafa áhrif og sótt undanþágur við inngöngu, en þau geta ekki litið á hvert einstakt mál sem sjálfstæða samningaviðræðu þar sem þau ráða endanlegri niðurstöðu. Alþjóðlegt samstarf Þetta snýst ekki um að alþjóðlegt samstarf sé óæskilegt. Sjálfstætt Grænland þyrfti samstarf við önnur ríki, rétt eins og Ísland gerir nú. Smáríki verða alltaf að byggja afkomu sína að hluta á markaðsaðgangi, varnarsamstarfi, fjárfestingu og samningum. En það skiptir sköpum hvort ríki velur slíkt samstarf frá máli til máls eða hvort það gengst undir varanlegt valdakerfi þar sem aðrir geta tekið bindandi ákvarðanir fyrir þess hönd. Sjálfstætt Grænland gæti bundið sig með samningum, en einnig endursamið þá eða sagt þeim upp samkvæmt skilmálum þeirra. Ísland innan ESB gæti hugsanlega einnig gengið úr sambandinu, en á meðan aðild stæði yrði það bundið sameiginlegri löggjöf, sameiginlegri viðskiptastefnu og sameiginlegum ákvörðunum á þeim sviðum sem sáttmálarnir ná til. Sjálfstætt Grænland hefði vinninginn Þess vegna væri sjálfstætt Grænland, þrátt fyrir smæð sína og efnahagslegar áskoranir, með víðtækari sjálfsákvörðunarrétt en Ísland sem aðildarríki ESB. Grænland réði sjálft hvort það framseldi vald og með hvaða skilyrðum. Ísland innan ESB hefði áhrif á sameiginlegt valdakerfi, en ekki fullt frelsi til að hafna niðurstöðu þess þegar meiri hluti annarra ríkja kysi að fara aðra leið. Þess vegna eiga Íslendingar að segja „NEI“ í ágúst n.k. og í stað þess að fórna fullveldinu fyrir partý í Brussel að vera áfram sjálfstæð og fullvalda þjóð sem getur gert viðskiptasamninga við hvaða þjóð sem er, jafnvel Grænland. Höfundur er læknir og fullveldissinni Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Grænland Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar