Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar 1. júlí 2026 10:01 Landhelgisgæsla Íslands fagnar í dag 100 ára afmæli. Í heila öld hefur hún staðið vörð um öryggi lands og þjóðar, verndað íslenska hagsmuni á hafi og komið fólki til bjargar við erfiðustu aðstæður. Þann 1. júlí árið 1926 eignaðist íslenska ríkið björgunarskipið Þór sem keypt var til landsins af björgunarfélagi Vestmannaeyja. Stuttu áður hafði varðskipið Óðinn, fyrsta sérsmíðaða íslenska varðskipið, komið til landsins. Og þar með hófst skipuleg gæsla íslenskrar landhelgi og vernd fiskimiðanna. Síðan þá hefur hlutverk Landhelgisgæslunnar vaxið og þróast í takt við breytt samfélag, nýjar ógnir og auknar kröfur um öryggi. Miklu meira en leitar- og björgunarsveit Í hugum margra er Landhelgisgæslan fyrst og fremst tengd leit og björgun. Þyrlur gæslunnar, varðskip og áhafnir hafa komið ótal manns til bjargar og oft unnið við aðstæður sem reyna til hins ýtrasta á fólk og búnað. En verkefni Landhelgisgæslunnar eru mun fjölbreyttari. Hún sinnir löggæslu á hafi, eftirliti með landhelgi og efnahagslögsögu Íslands, sjúkraflutningum, viðbrögðum við náttúruvá og mengunarslysum, auk mikilvægra verkefna á sviði öryggis- og varnarmála. Hún rekur skip, loftför og stjórnstöðvar og vinnur náið með öðrum viðbragðsaðilum, nágrannaþjóðum og bandalagsríkjum. Landhelgisgæslan er ein af meginstoðum almanna- og þjóðaröryggis Íslands. Það hlutverk hefur sjaldan verið mikilvægara. Heimsmyndin hefur breyst hratt og þjóðin finnur að öryggi landsins verður ekki tekið sem sjálfsögðum hlut. Ísland er herlaus þjóð og verður það áfram. Þess vegna skipta sterkir borgaralegir innviðir okkur enn meira máli. Þeir eru fyrsta lína varna okkar. Löggæsla á hafi Yfirstandandi aðgerð Landhelgisgæslunnar sýnir vel hversu mikilvægt hlutverk hennar er. Markmiðið er að tryggja öryggi allra sjófarenda og sjá til þess að íslensk lög séu virt, í samræmi við löggæslu- og öryggishlutverk Landhelgisgæslunnar á hafi. Þessi aðgerð minnir okkur á að löggæsla á Íslandi fer ekki aðeins fram á götum borga og strætum bæja. Löggæsla fer einnig fram langt úti á hafi, við krefjandi aðstæður og oft langt frá annarri aðstoð. Þar er Landhelgisgæslan fulltrúi íslenska ríkisins. Hún gætir öryggis, lögsögu og hagsmuna þjóðarinnar. Það lýsir afmælisbarninu afar vel að afmælisgleði var frestað til að sinna verkefnum á hafi úti. Að tryggja öryggi sjómanna. Styrkurinn felst í fólkinu Tæki og búnaður skipta miklu máli. Varðskip, þyrlur, flugvélar og stjórnstöðvar eru nauðsynleg til þess að Landhelgisgæslan geti sinnt verkefnum sínum. En hinn raunverulegi styrkur hennar felst í fólkinu. Í áhöfnum skipa og loftfara, sérfræðingum, vélstjórum, flugmönnum, stýrimönnum, björgunarfólki, varðstjórum og öllu því starfsfólki sem er reiðubúið að leggja af stað þegar kallið kemur. Oft inn í óvissu, erfiðar aðstæður og jafnvel hættu. Þetta fólk hefur í heila öld sýnt hvað felst í þjónustu við samfélagið. Störf þess hafa bjargað mannslífum, verndað náttúruauðlindir og öryggi Íslands. Kjörorð Landhelgisgæslunnar, „Við erum til taks“, eru því meira en falleg orð. Þau eru loforð til þjóðarinnar. Loforð sem hefur verið efnt í heila öld. Íslensku þjóðinni þykir vænt um Landhelgisgæsluna. Fáar stofnanir njóta jafn djúpstæðs trausts. Það traust er ekki sjálfgefið. Það hefur áunnist með heilli öld af þjónustu og fagmennsku. Við þekkjum sögurnar. Við þekkjum björgunarafrekin, hetjudáðina við erfiðar aðstæður og ótal verkefni sem hafa verið unnin fjarri sviðsljósinu. Við vitum að þegar á reynir er Landhelgisgæslan til taks. Á 100 ára afmæli Landhelgisgæslu Íslands er því tilefni til að líta stolt yfir farinn veg. En jafnframt til að tryggja að stofnunin verði áfram öflug, vel mönnuð og búin þeim tækjum sem hún þarf til að takast á við verkefni framtíðarinnar. Við sem þjóð stöndum í þakkarskuld við Landhelgisgæsluna. Til hamingju með 100 árin. Höfundur er dómsmálaráðherra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Landhelgisgæslan Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar