Bruninn á Stuðlum, skýrsla HMS Ingibjörg Einarsdóttir skrifar 30. júní 2026 20:03 Þegar 17 ára barn lést í eldsvoðanum á Stuðlum töldu flestir að þetta hefði verið hræðilegt slys. Nú liggur rannsóknarskýrsla HMS fyrir. Hún lýsir ekki bara eldsvoða. Hún lýsir kerfi sem brást á svo mörgum stigum. Viðbygging þar sem börn voru vistuð hafði verið í notkun í tæp tuttugu ár án lögboðinnar öryggis- og lokaúttektar. Ítrekaðar athugasemdir höfðu verið gerðar við brunavarnir. Þær voru ekki lagfærðar. Eftirlitsaðilar vissu af annmörkum. Samt hélt starfsemin áfram. Í skýrslunni kemur fram að rannsóknin sýndi fram á alvarleg frávik í virkni brunavarna miðað við brunahönnun. Brunahólfun reyndist ekki virk. Þegar brunaviðvörunarkerfið fór í gang opnuðust hvorki reyklúgur né virkjaðist aflæsingarbúnaður dyra í flóttaleið. Afleiðingin var sú að hurðir héldust læstar og flóttaleiðir voru óaðgengilegar. Skýrslan segir hluti sem erfitt er að horfa fram hjá. HMS metur að ef brunavarnir hefðu verið í samræmi við brunahönnun og rýmingaráætlun hefði verið framfylgt hefði verið hægt að koma í veg fyrir mannslátið. Þetta er ekki smávægilegt atriði. Þetta þýðir að dauðsfallið var ekki aðeins afleiðing íkveikju. Það varð einnig vegna þess að öryggiskerfið sem átti að vernda börnin virkaði ekki. Það er erfitt að lesa þessa skýrslu án þess að spyrja: Hvernig gat þetta gerst? Hvernig gat húsnæði sem hýsti innilokuð börn verið notað árum saman án þess að uppfylla grunnkröfur um öryggi? Hvernig gat staðið á því að vitað var um alvarlega annmarka án þess að gripið væri til aðgerða? Og mikilvægasta spurningin: Ef þetta hefði verið einkarekin stofnun fyrir börn, hefði hún fengið að starfa áfram við sömu aðstæður? Ég efast um það. Ég efast jafnvel um að hótel fyrir ferðamenn hefði fengið að starfa við þessar aðstæður. Í því ljósi er óskiljanlegt að stofnun sem hýsti einn viðkvæmasta hóp barna landsins hafi fengið að starfa undir þessum kringumstæðum. Þetta snýst ekki um að finna einn sökudólg. Skýrslan bendir á keðju ábyrgðar þar sem eigendur, eftirlitsaðilar og framkvæmd brunavarna brugðust allir að einhverju leyti. Þegar svo margir hlekkir bresta samtímis verður afleiðingin sú sem enginn vill sjá: dauðsfall barns í umsjá ríkisins. Það er raunveruleikinn. Lágmarks virðingin sem við getum sýnt barninu sem lést er að leyfa þessari skýrslu ekki að safna ryki. Hún verður að leiða til raunverulegra breytinga á öryggi þeirra barna sem dvelja í opinberum úrræðum. Hún verður að leiða til raunverulegra breytinga sem vernda þennan hóp barna. Vegna þess að þegar kerfið bregst þeim sem eru varnarlausastir er ekki nóg að segja að við lærum af mistökunum. Við verðum að tryggja að þau endurtaki sig aldrei. Því miður virðist þetta ekki vera einsdæmi. Sama hvert litið er í málefnum barna virðist kerfið eiga í alvarlegum vanda. BOFS, ráðuneyti, Ríkiseignir og eftirlitskerfið sjálft hafa hvert um sig mikilvægu hlutverki að gegna. Þegar svo margir hlekkir bregðast samtímis eru það börnin sem bera afleiðingarnar. Hvenær er nóg orðið nóg? Hvenær ætlum við að berja í borðið og segja hingað og ekki lengra? Hvenær ætlum við að standa saman sem þjóð og foreldrar allra barnanna okkar? Hversu mörg líf barna eiga að glatast áður en við sjáum í alvöru eitthvað breytast? Þá er ég ekki að tala um yfirlýsingar á blaði heldur framkvæmdir í verki. Það er tími til kominn að bretta upp ermarnar og láta verkin tala, við erum búin að heyra nóg! Höfundur er móðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni Stuðla Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar