Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Freyja Þórisdóttir skrifar 30. júní 2026 14:54 Er þetta tíundi hvalurinn sem er dreginn á land í Hvalfirði á þessari vertíð. Vísir/Vilhelm Hvalveiðiskipið Hvalur 8 dró tíunda hval veiðivertíðarinnar að landi á öðrum tímanum í dag en þjóðsöngur Íslands var spilaður í hátalarakerfi á höfninni meðan á verkinu stóð. Þá mátti heyra menn hrópa „áfram Ísland“ og tók einn starfsmaður Hvals sig til og sveiflaði getnaðarlim hvalsins að tökumanni fréttastofunnar.
Nú hafa alls tíu langreyðar verið drepnar og dregnar á land en skipið Hvalur 9 sneri til lands í gær með tvær langreyðar og Hvalur 8 nú í dag, þriðjudaginn 30. júní, með eina. Þá hefur Hvalur 9 enn ekki haldið aftur til veiða vegna veðurs á miðunum en Hvalur 8 hefur að öllum líkindum siglt í höfn með einn hval en ekki tvo eins og vaninn er, líklega af sömu ástæðu. Á myndbandinu hér að neðan má sjá þegar tíundi hvalurinn er dreginn á land en í hátalarakerfi á höfninni má heyra þjóðsönginn spilaðan, því næst er lagið „Ég er kominn heim“ spilað í hátalarakerfinu. Einn mannanna á höfninni tók sig loks til og lyfti upp getnaðarlim dýrsins og otaði í átt að myndavél tökumanns Vísis sem stóð álengdar. Fyrr í dag var greint frá því að Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, fylgi enn skipinu Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, eftir innan íslenskrar lögsögu. Samtökin hafa ítrekað hótað hvalveiðiskipum Hvals og er leiðangurinn kenndur við annan leiðangur árið 1986 þar sem tveimur skipum Hvals var sökkt.
Hvalir Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalfjarðarsveit Tengdar fréttir Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Sérfræðingur í hafrétti segir hótanir einar og sér ekki nægja til að Landhelgisgæslan geti vísað Bandero úr íslenskri lögsögu. Aðra sögu sé að segja um landhelgina þar sem gæslan hafi auknar valdheimildir. 30. júní 2026 11:15 Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. segist ekki leggja neinn trúnað á yfirlýsingar aðgerðarsinna sem berjast gegn hvalveiðum hér á landi um að þeir vinni ekki með Paul Watson og félögum um borð í Bandero. Níu langreyðar hafa verið veiddar hingað til. 30. júní 2026 06:24 Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Innlent Fleiri fréttir Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Sjá meira
Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Sérfræðingur í hafrétti segir hótanir einar og sér ekki nægja til að Landhelgisgæslan geti vísað Bandero úr íslenskri lögsögu. Aðra sögu sé að segja um landhelgina þar sem gæslan hafi auknar valdheimildir. 30. júní 2026 11:15
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. segist ekki leggja neinn trúnað á yfirlýsingar aðgerðarsinna sem berjast gegn hvalveiðum hér á landi um að þeir vinni ekki með Paul Watson og félögum um borð í Bandero. Níu langreyðar hafa verið veiddar hingað til. 30. júní 2026 06:24