Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 5. júlí 2026 13:04 Þórey S. Þórðardóttir er framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða vísir/vilhelm Á fjörutíu og fimm árum hefur fjöldi lífeyrissjóða á íslenskum vinnumarkaði farið úr tæplega hundrað í sautján talsins. Töluvert hefur verið um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið sem framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir jákvætt skref.
Í byrjun mánaðar bárust fréttir af því að lífeyrissjóðirnir Festa og Gildi hyggðust hefja viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Í síðustu viku samþykktu sjóðfélagar Lífeyrissjóðs bænda einróma tillögu um sameiningu við Frjálsa lífeyrissjóðinn og ekki er langt síðan að sjóðfélagar Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands samþykktu sameiningu við Frjálsa lífeyrissjóðinn. Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið. „Það virðist vera mikið um samningaviðræður og þetta er að gerast svolítið hratt.“ Margt bendi til sjóðum fari enn fækkandi Árið 1969 var allsherjarkjarasamningur gerður á vinnumarkaði og atvinnutengdir lífeyrissjóðir stofnaðir með skylduaðild og sjóðssöfnun sem var gríðarlegt gæfuspor. Þá hafi flest stéttarfélög stofnað sína eigin lífeyrissjóði. Árið 1980 hafi lífeyrissjóðir verið 96 talsins. „Síðan fer þeim bara hratt fækkandi með sameiningum og núna í árslok árið 2025, um síðustu áramót þá voru þeir sautján. Og það er margt sem bendir til að sjóðunum fari enn fækkandi.“ Enda séu að minnsta kosti þrjár samningaviðræður um sameiningu í ferli. Jákvæð þróun Þórey segir sameiningu lífeyrissjóða jákvæða enda lækki rekstrarkostnað hjá sjóðunum við sameiningu auk þess sem hún stuðli að aukinni áhættudreifingu. Mikilvægt sé þó að það séu nokkrir sterkir lífeyrissjóðir á markaðnum svo að heilbrigð samkeppni sé til staðar. Stjórnsýslan hafi þyngst sem geti einnig skýrt fjölda sameininga. „Það er eru ýmis regluver er varða upplýsingatækni, netöryggi, sjálfbærnilöggjöf, kröfur um hæfi stjórnarmanna og annað slíkt sem er hagkvæmara að vera í stærri einingu. Ekki það að litlir sjóðir geta alveg fundið sér aðrar leiðir en sameiningu með því að draga úr rekstrarkostnaði.“
Lífeyrissjóðir Vinnumarkaður Tengdar fréttir Festa og Gildi vilja sameinast Lífeyrissjóðirnir Festa og Gildi hyggjast hefja viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Gangi sameiningin eftir yrði nýr sjóður sá næststærsti á landinu með um 1.600 milljarða króna eignir miðað við stöðu sjóðanna í lok síðasta árs. 11. júní 2026 16:16 Birta og LV skoða mögulegan samruna Stjórnir Birtu lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður til að meta fýsileika mögulegs samruna sjóðanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá báðum lífeyrissjóðum. 27. janúar 2026 17:07 Lífeyrissjóður tannlækna sameinast Frjálsa Sjóðfélagar Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands (LTFÍ) samþykktu einróma tillögu um sameiningu við Frjálsa lífeyrissjóðinn á sjóðfélagafundi lífeyrissjóðsins sem haldinn var í gær. 14. nóvember 2025 10:55 Sameining Almenna og Lífsverks Í gær sótti ég aukaársfund Lífsverks lífeyrissjóðs þar sem kynnt var tillaga um sameiningu við Almenna lífeyrissjóðinn. Í aðdraganda málsins hafa báðir sjóðir haldið kynningarfundi fyrir sjóðfélaga og farið yfir forsendur og kosti sameiningar. 12. nóvember 2025 20:31 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira
Festa og Gildi vilja sameinast Lífeyrissjóðirnir Festa og Gildi hyggjast hefja viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Gangi sameiningin eftir yrði nýr sjóður sá næststærsti á landinu með um 1.600 milljarða króna eignir miðað við stöðu sjóðanna í lok síðasta árs. 11. júní 2026 16:16
Birta og LV skoða mögulegan samruna Stjórnir Birtu lífeyrissjóðs og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður til að meta fýsileika mögulegs samruna sjóðanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá báðum lífeyrissjóðum. 27. janúar 2026 17:07
Lífeyrissjóður tannlækna sameinast Frjálsa Sjóðfélagar Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands (LTFÍ) samþykktu einróma tillögu um sameiningu við Frjálsa lífeyrissjóðinn á sjóðfélagafundi lífeyrissjóðsins sem haldinn var í gær. 14. nóvember 2025 10:55
Sameining Almenna og Lífsverks Í gær sótti ég aukaársfund Lífsverks lífeyrissjóðs þar sem kynnt var tillaga um sameiningu við Almenna lífeyrissjóðinn. Í aðdraganda málsins hafa báðir sjóðir haldið kynningarfundi fyrir sjóðfélaga og farið yfir forsendur og kosti sameiningar. 12. nóvember 2025 20:31