Dómar sem eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hrauni Davíð Bergmann skrifar 30. júní 2026 10:01 Ég get hreinlega ekki orða bundist lengur. Mér finnst við vera að glata dýrmætu tækifæri og svona dómar eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hraun til framtíðar. Nýlegt dæmi um þetta má sjá í frétt Mannlífs, „Ungir menn dæmdir fyrir fjölda alvarlegra afbrota“, þar sem ungir menn sleppa með 45 daga skilorðsbundið fangelsi og frestun refsingar fyrir langan syndalista: líkamsárásir, húsbrot, eignaspjöll, vopnalagabrot og fíkniefnalagabrot. https://mannlif.is/greinar/ungir-menn-dmdir-fyrir-fjlda-alvarlegra-afbrota/ Svona drengir skeina sér á skilorðsbundnum dómum. Þarna átti ekki að hika, heldur grípa tækifærið og nýta 57. gr. almennra hegningarlaga til að skilyrða dóminn með ströngum ákvæðum. Með þessu áframhaldi framleiðum við afbrotamenn á færibandi til næstu áratuga. Svona dómar eru einfaldlega uppskrift að varanlegri áskrift að fangelsum landsins. Það er ekki að undra að almenningur sé hættur að taka mark á íslenskum dómstólum. Hvar er leiðbeiningin? Hvar er fræðslan? Fyrir þessum strákum er þetta bara saklaust „skamm, skamm, ekki gera þetta aftur“. Svona afgreiðsla er í mínum huga með öllu óskiljanleg. Þarna er algjörlega litið fram hjá hagsmunum hins almenna borgara, sem dómstólarnir eiga þó að verja. Þeir sem brotið er á vilja nefnilega iðulega gleymast, enda virðist sú lenska uppi að aumingja- og bómullarvæða gerendur. Í mínum huga er þessi dómur algjört djók sem sendir háskaleg, tvöföld skilaboð til ungra afbrotamanna. Og hvaða skilaboð eru það eiginlega? Jú, miðað við svona dóma mun Stóra-Holt – eins og nýja fangelsið á að heita – engan veginn duga í framtíðinni. Ég held að við verðum frekar að fara að kalla það Risa-Stóra-Holt ef fram heldur sem horfir. Hvað ætlum við eiginlega að berja höfðinu við steininn lengi áður en við förum að taka á þessum málaflokki af fullri alvöru og festu? Eftir hverju erum við að bíða? Öðrum hræðilegum atburði eins og þeim sem skók samfélagið á Menningarnótt hérna um árið? Við höfum hreinlega engan tíma til að bíða. Sérsveitin okkar hefur varla undan að sinna vopnuðum útköllum og það líður ekki sú vika að ekki sé frétt af hnífstungu eða alvarlegri líkamsárás. Og ég er ekki hissa, miðað við vægðina sem dómstólar sýna í málum sem þessum. Við verðum að fara að stokka þennan málaflokk upp frá grunni og það á að gera án allrar meðvirkni. Höfundur er áhugamaður um betra samfélag og með áratuga reynslu af málaflokki ungmenna í vanda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar