Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps Áróra L Davíðsdóttir skrifar 30. júní 2026 00:11 Árið 2023 var Trump gert að greiða rithöfundinum E. Jean Carroll fimm milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar um 650 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur. Getty Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað áfrýjunarbeiðni Donalds Trump Bandaríkjaforseta í máli þar sem hann hefur verið fundinn sekur um ærumeiðingar og kynferðisofbeldi gegn rithöfundinum E. Jean Carroll.
Árið 2023 var Trump gert að greiða Caroll fimm milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar um 650 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur. Áfrýjunardómstóll Bandaríkjanna staðfesti úrskurð kviðdóms í New York á síðasta ári en Trump bað hæstarétt Bandaríkjanna í kjölfarið um að grípa inn í málið. Hæstiréttur hefur nú hafnað áfrýjunarbeiðni forsetans í málinu. Í umfjöllun BBC segir þetta hafa verið síðustu von Trump um að hnekkja dómi kviðdómsins en nú neyðist hann til að greiða Caroll þær skaðabætur sem honum voru dæmdar að greiða. Lögmaður Caroll sagði í yfirlýsingu að ákvörðun hæstaréttar hefði „staðfest í eitt skipti fyrir öll einróma dóm kviðdómsins um að Donald J. Trump forseti hafi beitt E. Jean Carroll kynferðisofbeldi og ærumeiðingum“. Þrátt fyrir að Trump hafi verið fundinn sekur um ærumeiðingar og kynferðisofbeldi gegn Carroll hafnaði kviðdómurinn kröfu hennar um nauðgun eins og hún er skilgreind í hegningarlögum New York. Carroll hafi kært Trump fyrir að ráðast á sig um miðjan tíunda áratuginn í mátunarklefa í stórverslun á Manhattan. Ærumeiðingarnar af hálfu Trumps stöfuðu af færslu hans á Truth Social-miðli sínum árið 2022 þar sem hann neitaði ásökunum hennar og sagði hana ljúga.
Bandaríkin Donald Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira