Þegar dýravelferð víkur fyrir hagnaði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 30. júní 2026 08:00 Fá mál snerta mig jafn djúpt og blóðmerahaldið. Þegar myndbönd birtust fyrir nokkrum árum af illri meðferð fylfullra hryssa brá mörgum landsmönnum. Hvort sem um var að ræða einstök frávik eða ekki, sá þjóðin dýr sem virtust upplifa ótta, streitu og sársauka. Eftir þessar birtingar hófst mikil umræða um siðferði þess að taka blóð úr fylfullum hryssum til framleiðslu hormónsins PMSG sem aðallega er notað í öðrum löndum til að auka afköst í svínarækt. Opinberir rannsóknar- og eftirlitsaðilar skoðuðu málið sem vakti athygli langt út fyrir landsteinana. Nú hefur starfsemin verið heimiluð aftur samkvæmt nýju regluverki og auknum skilyrðum um framkvæmd og eftirlit. Það breytir þó ekki þeirri grundvallarspurningu sem við verðum að spyrja okkur: Á Ísland að stunda útflutning á blóði úr fylfullum hryssum til framleiðslu á afurð sem þjónar iðnvæddri kjötframleiðslu í útlöndum? Ég segi nei. Flokkur fólksins hefur um árabil barist gegn blóðmerahaldi. Við höfum lagt fram frumvörp um bann við þessari starfsemi vegna þess að við teljum að velferð dýra eigi ekki að víkja fyrir fjárhagslegum hagsmunum. Dýr eru ekki framleiðslutæki. Þau eru lifandi verur sem eiga rétt á að vera meðhöndluð af virðingu. Auðvitað ber ég virðingu fyrir bændum. Flestir íslenskir bændur hugsa vel um dýrin sín og vinna störf sín af samviskusemi. Þess vegna snýst þessi umræða ekki um að gera alla bændur tortryggilega. Hún snýst um ákveðna atvinnugrein og hvort hún samræmist þeim gildum sem við viljum að íslenskt samfélag standi fyrir. Við eigum að geta sagt með stolti að íslenskur landbúnaður byggi á gæðum, ábyrgð og góðri meðferð dýra. Það er ímynd sem skiptir máli, ekki aðeins fyrir útflutning heldur einnig fyrir sjálfsmynd okkar sem þjóð. Ekki lengur ásættanlegt Þegar samfélagið þróast breytast líka siðferðileg viðmið. Margt sem áður þótti sjálfsagt teljum við ekki lengur ásættanlegt. Ég tel að blóðmerahaldið falli undir slíkar breytingar. Þótt lög heimili ákveðna starfsemi er hún ekki sjálfkrafa rétt. Ég vil alfarið banna blóðmerahald á Íslandi. Ekki vegna þess að ég sé á móti bændum eða landbúnaði, heldur vegna þess að ég tel að velferð dýra eigi alltaf að njóta vafans þegar tekist er á um mörkin milli hagnaðar og mannúðar. Samfélag er ekki einungis dæmt af því hvernig komið er fram við fólk. Það er líka dæmt út frá því hvernig komið er fram við dýrin sem eiga allt undir okkur fólkinu sem byggir samfélagið. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar