Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir skrifar 29. júní 2026 11:31 Maðurinn minn hefur verið að glíma við brjósklos í baki frá því í júlí í fyrra. Hann er kominn á lista fyrir aðgerð og hefur beðið eftir að komast að. Í byrjun maí fékk hann hins vegar þær fréttir að sá aðgerðakvóti sem Læknastöðin í Orkuhúsinu fékk úthlutað frá Sjúkratryggingum Íslands væri búinn. Síðan þá höfum við beðið eftir svörum um hvort þau fái auka kvóta, en engin svör hafa borist frá Sjúkratryggingum í um tvo mánuði. Það sem er svo erfitt að skilja er að lausnin virðist vera til staðar. Aðstaðan er til staðar, sérfræðingarnir eru til staðar og viljinn til að gera fleiri aðgerðir er til staðar, en kerfið kemur í veg fyrir að hægt sé að sinna sjúklingum á biðlista. Maðurinn minn gæti komist fyrr í aðgerð ef við greiddum hana sjálf, eins og margir eru farnir að gera, en hún kostar um 1,2 til 1,5 milljónir króna. Núna hefur hann beðið það lengi að hann á rétt á að fara í aðgerð erlendis, mögulega í september eða október. Sú leið myndi hins vegar kosta íslenska ríkið um 3,6 til 4,5 milljónir króna. Hvers vegna á að senda fólk úr landi í aðgerð fyrir margfalt hærri upphæð þegar hægt væri að framkvæma hana hér heima? Eftir því sem ég best veit eru margir á biðlistum eftir sambærilegum aðgerðum. Landspítalinn annar ekki eftirspurninni og þar getur biðtíminn verið 12 til 18 mánuðir. Á meðan reynir fólk að halda áfram að vinna, sinna fjölskyldu og lifa eðlilegu lífi, þrátt fyrir stöðuga verki og tilheyrandi þörf fyrir verkjalyf til að komast í gegnum daginn. Það er líka staðreynd að meðan beðið er geta taugar skaðast með varanlegum afleiðingum. Ég skil ekki hvers vegna stjórnvöld bregðast ekki við þegar það er hægt að nýta þá getu sem þegar er til staðar. Þetta snýst um líf sjúklinga en ekki bara tölur á blaði. Ég skora á stjórnvöld að skera á þennan hnút og finna fjármagn í bráðnauðsynlegar aðgerðir áður en það verður of seint. Höfundur er aðstandandi sjúklings. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar