Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar 26. júní 2026 23:02 Ég þurfti ekki að lesa skýrslu Ríkisendurskoðunar til að vita að kerfið væri að bregðast þeim börnum sem þurfa á mestri hjálp að halda. Ég hef upplifað það sjálf sem foreldri. Nú hefur Ríkisendurskoðun staðfest það sem foreldrar hafa sagt árum saman. Þegar farsældarlögin voru samþykkt árið 2021 voru þau kynnt sem tímamót í þjónustu við börn. Markmiðið var göfugt: að tryggja að börn og foreldrar fengu samþætta þjónustu við hæfi, án hindrana. Fáir myndu deila um mikilvægi þess markmiðs. Nú, rúmum fjórum árum síðar, hefur Ríkisendurskoðun birt úttekt á innleiðingu laganna. Niðurstaðan er sláandi. Þótt samvinna milli kerfa hafi aukist og nýtt verklag verið innleitt telur Ríkisendurskoðun ekki að forsendur séu til staðar til að ná meginmarkmiði laganna. Fyrir foreldra barna sem þurfa mikla þjónustu kemur þetta ekki á óvart. Foreldrar barna með geðrænan vanda, taugaþroskaraskanir, fötlun eða vímuefnavanda hafa árum saman setið fund eftir fund með sérfræðingum. Þeir hafa fengið málstjóra, stuðningsteymi og þjónustuáætlanir. En á meðan hafa börnin beðið. Beðið eftir greiningu. Beðið eftir meðferð. Beðið eftir úrræðum sem annaðhvort eru ekki til eða eru óaðgengileg vegna endalausra biðlista. Skýrsla Ríkisendurskoðunar staðfestir þessa reynslu. Hún bendir á að farsældarlögin séu fyrst og fremst samvinnulög. Þau bæta samskipti milli kerfa en fjölga hvorki sálfræðingum, stytta biðlista né skapa ný meðferðarúrræði. Þegar þjónustan er ekki til staðar verður samþætting hennar innantóm. Sérstaklega vekur athygli að Ríkisendurskoðun telur stöðu þeirra barna sem þurfa mestan stuðning óviðunandi. Þar eru nefnd börn með fjölþættan vanda, börn með vímuefnavanda, fósturbörn og fötluð börn. Með öðrum orðum: þau börn sem síst mega við því að falla á milli kerfa. Kannski er þó alvarlegasta niðurstaða skýrslunnar sú að enn hafa ekki verið skilgreindir mælikvarðar sem sýna hvort lögin hafi skilað þeim árangri sem lofað var. Eftir fjögur ár getum við því ekki einu sinni svarað því með vissu hvort farsæld barna hafi aukist vegna laganna. Hugmyndafræði farsældarlaganna er góð og flestir sem starfa með börnum styðja hana af heilum hug. En góð hugmyndafræði nægir ekki. Ef barn þarf geðheilbrigðisþjónustu, meðferð eða sérhæft úrræði verður sú þjónusta að vera til staðar þegar hennar er þörf. Annars er farsældin ekkert annað en falleg fyrirheit á pappír. Í dag er hún því lítið annað en rómantísk saga á blaði - falleg í orði en fjarri raunveruleika þeirra fjölskyldna sem berjast á hverjum degi. Þetta er orðið meira en bara þreytt. Þetta er einfaldlega til háborinnar skammar hjá þjóð sem vill kalla sig siðmenntaða. Á meðan fólk safnast saman til að mótmæla velferð annarra barna eru börnin okkar bókstaflega að deyja. Samt virðist enginn rísa upp og mótmæla því. Í mínum huga er það tvöfalt siðferði. Stjórnmálamenn halda áfram að gefa innistæðulausar yfirlýsingar en ábyrgðin er enn óljós. Börnum með fjölþættan vanda er kastað á milli ríkis og sveitarfélaga eins og heitri kartöflu. Á meðan versnar staða barnanna og fjölskyldna þeirra með hverjum deginum. Við virðumst vera með allt í ólestri þegar kemur að þjónustu við börn. Þjónusta við fötluð börn er ófullnægjandi. Börn með ýmsa fæðingargalla falla á milli skips og bryggju. Geðheilbrigðiskerfið nær aðeins til lítils hluta þeirra barna sem þurfa á þjónustu að halda. Yfir 650 börn bíða eftir einhverfugreiningu og um 2500 börn eftir öðrum greiningum hjá Geðheilsumiðstöð barna. Fíknimeðferðir fyrir ungmenni eru of víða orðnar dýrt leikrit sem skilar litlum sem engum árangri. Og listinn heldur áfram. Reynslan hefur sýnt mér að hvorki ríkið né sveitarfélagið rétta foreldrum barna sem eru bókstaflega að drukkna björgunarkút. Þvert á móti er upplifunin sú að í stað hjálpar sé kastað steinum í mann á meðan maður reynir af öllum mætti að bjarga lífi barnsins síns. Þrátt fyrir að lög kveði skýrt á um skyldu ríkis og sveitarfélaga til að veita þessa þjónustu virðist allt gert eins erfitt og mögulegt er. Foreldrar sem eru að berjast fyrir lífi barna sinna fá ekki aðeins litla sem enga aðstoð heldur standa oft eftir einir, örmagna og án þess stuðnings sem þeir eiga rétt á. Þegar maður svo missir heilsuna sjálfur vegna álags fær maður heldur enga hjálp til að rísa á fætur aftur. Það er löngu kominn tími til að hætta að skrifa falleg lög og byrja að framkvæma. Skilgreina ábyrgð. Byggja upp úrræði. Fjármagna þjónustuna. Ekki á morgun. Ekki á næsta kjörtímabili. Heldur strax í dag. Höfundur er móðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Réttindi barna Heilbrigðismál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar