Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. júní 2026 12:30 Caitlin Clark er án vafa skærasta stjarna WNBA-deildarinnar. Mörgum þykir hún fá ósanngjarna meðferð frá mótherjum og dómurum deildarinnar. getty/Andy Lyons Alyssa Thomas, leikmaður Phoenix Mercury í WNBA-deildinni í körfubolta, hefur verið úrskurðuð í eins leiks bann fyrir að kýla Caitlin Clark í leik gegn Indiana Fever.
Í 2. leikhluta í leiknum í fyrradag kýldi Thomas Clark í hálsinn. Hún slapp við refsingu og atvikið var ekki skoðað. Eftir leikinn kvartaði Stephanie White, þjálfari Fever, yfir meðferðinni sem Clark fær frá dómurum WNBA-deildarinnar og sagði brot Thomas galið og hættulegt. „Við erum með einstakan leikmann, WNBA-ofurstjörnu, sem fékk tvö högg sem ekki var refsað fyrir. Það er algjörlega óásættanlegt,“ sagði White. „Við vörðum öllum tímanum á undirbúningstímabilinu í að skoða dómgæsluna. Allt sem við biðjum um er samræmi. Hún fær ekki sömu meðferð og aðrir. Höggið í hálsinn er galið. Það er hættulegt. Það er pirrandi þegar þetta gerist aftur og aftur en mér fannst þetta vera svívirðilegt.“ Í gær brást WNBA við og dæmdi Thomas í eins leiks bann fyrir að kýla Clark. Samkvæmt reglum deildarinnar áskilur hún sér rétt til að skoða atvik sem ekki var refsað fyrir og breyta þeim í óíþróttamannslega villu. Thomas tekur út refsingu sína þegar Mercury mætir Toronto Tempo á morgun. Sama dag mætir Fever Los Angeles Sparks. Ekki liggur fyrir hvort Clark tekur þátt í leiknum en hún fór meidd af velli gegn Mercury. Grunnt er á því góða milli Fever og Mercury en fimm leikmenn liðanna fengu tæknivillu þegar þau mættust á mánudaginn var. Meðal þeirra var Clark sem þótti hafa ögrað leikmönnum Mercury. Sjálf taldi hún sig hafa fengið tæknivilluna fyrir að klappa saman höndunum. Í kjölfar leiksins á miðvikudaginn og brotsins á Clark hefur skapast mikil umræða um hvort WNBA geri nóg til að vernda vinsælasta leikmann deildarinnar og hvort hún fái sanngjarna meðferð hjá dómurum. Fever situr í 7. sæti WNBA með tíu sigra og átta töp. Clark er fjórði stigahæsti leikmaður deildarinnar á tímabilinu með 21,2 stig að meðaltali í leik og næststoðsendingahæst (8,2 í leik). Hún er á sínu þriðja tímabili í WNBA.
WNBA Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Körfubolti Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Fleiri fréttir Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Sjá meira