Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar 26. júní 2026 07:00 Í borgarstjórnarkosningunum lofuðum við í Viðreisn að minnka kerfið og styrkja hverfin. Nú hefur fyrsta skrefið verið stigið. Á næstu misserum munum við leggja fram fleiri tillögur sem einfalda stjórnkerfið og draga úr kostnaði. Við vinnum þá vinnu með gildi Viðreisnar í huga, en þau eru frjálslyndi, mannvirðing og ábyrgð í rekstri. Göngum fram með góðu fordæmi Borgarráð afgreiddi fyrstu aðgerðir til hagræðinga og einföldunar á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar í gær. Tillögurnar voru unnar af stýrihópi sem ég leiði í umboði borgarstjórnar. Við teljum mikilvægt að ganga fram með góðu fordæmi. Meðal fyrstu skrefa er því að hefja endurskoðun á launakjörum borgarfulltrúa og leggja til við Alþingi að borgarstjórn verði veitt heimild til að fækka borgarfulltrúum. Hagræðing og einföldun í ráðhúsinu Aðgerðirnar sem borgarráð samþykkti í gær snúa að hagræðingu og einföldun stjórnkerfisins í ráðhúsinu. Áætlað er að þær breytingar lækki rekstarkostnað borgarinnar um 280-330 milljónir króna á ári. Borgarbúar munu ekki finna fyrir þeim breytingum í daglegri þjónustu. Þvert á móti leggjum við áherslu á að bæta þjónustu út í hverfunum. Ávinningurinn á að skila sér þar sem borgarbúar finna fyrir honum, t.d. í viðhaldi skólabygginga og íþróttamannvirkja, betri gangstéttum og stígum og öflugri umhirðu borgarinnar. Mannréttindi áfram í hávegum höfð Verkefni á sviði mannréttinda fá nýjan farveg innan stjórnkerfisins og rekstrarkostnaður lækkar. Engum verkefnum er hætt, heldur eru þau færð á þjónustusviðin. Réttindi fatlaðs fólks verða velferðarsviði og hinsegin fræðslan verður á skóla- og frístundasviði, svo dæmi séu tekin. Mannréttindastefna Reykjavíkurborgar verður á forræði borgarráðs og mannréttindafulltrúi mun sjá um samskipti við Mannréttindastofnun Íslands sem skal efla og vernda mannréttindi á Íslandi. Reykjavík er eftir sem áður mannréttindaborg! Breytingar eru erfiðar Stórar ákvarðanir sem þessar eru erfiðar fyrir starfsfólkið, bæði þau sem láta af störfum hjá borginni og þau sem halda áfram að sinna mikilvægri þjónustu og stjórnsýslu borgarinnar. Mannauðs- og starfsumhverfissvið borgarinnar hefur undirbúið aðgerðirnar vel í samstarfi við stjórnendur. Það öfluga fólk sem lætur af störfum núna mun örugglega skapa sér ný og spennandi tækifæri. Breytingar sem þessar eru aldrei einfaldar. En ef við ætlum að standa við loforðið um minna kerfi og meiri hverfi þurfum við líka að hafa kjark til að framkvæma þær af ábyrgð og virðingu. Höfundur er borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður stýrihóps um hagræðingu og breytingar hjá Reykjavíkurborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Viðreisn Borgarstjórn Reykjavík Róbert Ragnarsson Mest lesið Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Sjá meira