„Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 25. júní 2026 12:00 Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður NPA-miðstöðvarinnar. vísir/Lýður Valberg Fatlað fólk er látið sitja á hakanum að mati formanns NPA-miðstöðvarinnar sem segir mál manns sem fær ekki þá þjónustu sem hann á lögvarinn rétt á enn eitt dæmið um gagnrýnisverða forgangsröðun hjá sveitarfélögum og ríkinu.
Fréttastofa fjallaði í gær um mál Patriks Inga Heiðarssonar sem hlaut mænuskaða eftir slys á mótorhjóli fyrir þremur árum og hefur síðan verið lamaður fyrir neðan brjóst. Hann fær ekki þá NPA-þjónustu sem hann á lögvarinn rétt á þrátt fyrir að hún hafi verið samþykkt fyrir sjö mánuðum. Þjónustan strandi á því að borgin samþykki greiðslusamning. Hann segir öryggi sínu, heilsu og mannlegri reisn ítrekað vera stefnt í hættu við núverandi ástand. Hann hefur til dæmis ekki séð dóttur sína í tvö ár og ítrekað legið í eigin þvagi yfir nótt. Margir hafi það ekki í sér að berjast við kerfið „Þarna er einstaklingur sem er búið að kippa undan fótunum bara bókstaflega og er búinn að vera eiga við það áfall að missa gífurlega getu. Miðað við þá þjónustu sem hann fær í dag, er hann klárlega ekki að fá það sem hann þarf til þess að geta tekið þátt í þjóðfélaginu. Mín tilfinning er að hann sé í hálfgerðu stofufangelsi.“ Þetta segir Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, formaður NPA-miðstöðvarinnar, sem segir mál eins og Patriks of algeng. „Svo eru aðrir sem jafnvel veigra sér við að sækja um og er vísað frá því að sækja um. Þeim er sagt að NPA sé ekki fyrir þau eða sveitarfélög nota alls konar ástæður til þess að beina fólki frá því að sækja um NPA. Það er slatti að bíða en það er líka slatti sem að myndi vilja fá NPA en fer kannski ekki út í það að berjast við kerfið.“ Spurning um forgangsröðun Sveitarfélög bera helst fyrir sig skort á fjármagni þegar kemur að löngum biðlistum. Rúnar segir þetta spurningu um forgangsröðun, ekki sé gert ráð fyrir lögbundnu þjónustunni í fjárhagsáætlun hvers árs og fatlað fólk látið sitja á hakanum. „Við teljum að það sé algjör mýta að þetta sé kostnaðarsöm þjónusta. Ef maður rýnir í tölurnar, ef þú horfir á allt sem er inni í NPA-þjónustunni og tekur svo þjónustu sem er til dæmis veitt á íbúðarkjörnum og skoðar allt sem er verið að veita fólki í þjónustu þar sem er inni í NPA. Þá er kostnaðurinn sambærilegur við stofnanajónustuna. Þar að auki eru sveitarfélögin líka að fá mótframlag, 25 prósent mótframlag. Það getur vel verið að NPA sé dýrara en þjónusta sem heldur þér í stofufangelsi en hún er ekki dýrari en önnur fullnægjandi þjónusta.“ Hann kallar eftir úttekt á því hvernig þessum málum er háttað og skorar á stjórnvöld að gera betur. „Mér finnst að ríkið mætti þarna standa betur með fötluðu fólki og veita sveitarfélögum meira aðhald. Þú veist það er klárt mál hvað lögin segja. Fatlað fólk á rétt á þessu. Sveitarfélög bera ábyrgð á að veita þjónustuna og fjármagna hana. Það þýðir ekkert fyrir sveitarfélögin að segja þeim vanti fjármagn. Þau verða bara að sækja það. Ef þeim finnst þeim vanta fjármagn þá verða þau bara að veita þjónustuna og fara í mál við ríkið. Það gengur ekki að láta fatlað fólk bara greiða fyrir það vandamál,“ segir hann og bætir við: „Ég held að það þurfi að fara út í úttekt af því að við sjáum að þetta er kerfislægt. Þetta er ekki bara eitt sveitarfélag, þetta er ekki bara einn staður á landinu heldur. Við sjáum ítrekað úrskurði sem fara í úrskurðarnefnd velferðarmála þar sem að er verið að brjóta á fötluðu fólki, stjórnsýslulög, málsmeðferð um fatlað fólk er sett á endalausa biðlista þar sem það veit ekkert hvar það er og það eru teknir úrskurðir án þess að málin séu faglega afgreidd og alls konar svona hlutir sem að virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki.“
Málefni fatlaðs fólks Félagsmál Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira