Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar 25. júní 2026 08:32 Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Nú skortir mín skilning og orð. Hvernig má það vera að Samhjálp sem sinnir okkar minnstu bræðrum fær rauða spjaldið korter í opnun kaffistofu sinnar á nýjum stað ? Samhjálp missti húsnæði sitt í Borgartúni og hefur verið með aðstöðu hjá Fíladelfíu en fengu húsnæði við Grensásveg nýlega og hafa lagt í umtalsverðan kostnað við að gera það hentugt fyrir sína starfsemi sem er byggð á kærleika og umhyggju fyrir okkar minnstu bræðrum. Strax þá byrjuðu mótmæli og undirskriftir gegn því að þessi griðarstaður utangarðsfólks flyttist á Grensásveg. Ég skil það vel. Hver vill slíka kaffistofu í nágrenni sitt ? Stutt er í skóla þarna og hver vill að barnið sitt mæti fólki í annarlegu ástandi eða verði vitni að átökum milli ógæfufólks sem fær mat og hlýju um stund hjá kaffistofu Samhjálpar ? Lögreglan oft kölluð á vettvang og vesenið sem við viljum ekki sjá birtist okkur óumbeðið. Ég bý í 108 Reykjavík og skil vel áhyggjur foreldra og nágranna. Húsnæði mun kannski ekki seljast jafn vel og àður í næsta nàbýli víð kaffistofu Samhjálpar. Það velur sér enginn að fæðast með færri spil á hendi, lenda utangátta í vitlausum félagsskap og festast í neyslu. Það kýs enginn að glíma við geðfötlun og geta ekki fótað sig og fjárfest í eigin húsnæði sem reyndar bara ríku börn samfélagsins eiga séns í. Erlendir þegnar þessa lands eiga líka oft erfitt og missa fæturna. Hvar er þá hægt að fá að borða og finna smá hlýju nema hjá kaffisölu Samhjálpar. Þetta mikilvæga starf að gefa heitan mat og húsaskjól á köldum dögum til þeirra sem eiga ekki í annan stað að leita er einstakt. Starfið er unnið af sjálfboðaliðum og mörg fyrirtæki gefa hráefni til starfsins sem er vissulega þakkarvert. Best væri að enginn þyrfti á þessari þjónustu að halda en þangað þurfa því miður margir að leita. Svo berast nú fréttir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafi fellt úr gildi ákvörðun byggingafulltrúa frá því í mars að gefa Samhjálp leyfi að opna nýja kaffistofu við Grensásveg. Hugmyndin var að opna nú í lok júní og hefur Samhjálp lagt í mikinn kostnað í að breyta nýja húsnæðinu til að sinna því starfi sem best. Er þetta regluverk hjá Reykjavíkurborg í lagi ? Hvað à þetta það þýða ? Hver ber ábyrgð á þessu? Bind mun meiri vonir við nýjan meirihluta en þennan gjörning. Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ebba Margrét Magnúsdóttir Kaffistofa Samhjálpar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar