Körfubolti

Okeke farinn frá Álfta­nesi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Dedrick Basile og David Okeke í baráttunni í Bónus-deildinni. Nú er Okeke farinn frá liðinu og Basile kominn. 
Dedrick Basile og David Okeke í baráttunni í Bónus-deildinni. Nú er Okeke farinn frá liðinu og Basile kominn.  vísir/Anton

Miðherjinn David Okeke hefur samið við liðið Las Animas í Síle.

Þetta kemur fram í frétt á Karfan.is. Okeke hefur lengi vel leikið hér á landi og meðal annars með Álftnesingum síðustu tvö tímabil. 

Hann var einn besti leikmaður Álftaness á síðasta tímabili með 17,9 stig að meðaltali í leik og 8,9 fráköst.

Álftanes komst aftur á móti ekki í úrslitakeppnina í Bónus-deildinni og hefur ráðið inn nýjan þjálfara fyrir komandi átök, Baldur Þór Ragnarsson sem var við stjórnvölinn hjá Stjörnunni síðustu tvö tímabil og gerði Garðbæinga að Íslandsmeisturum í fyrra. 

Baldur hefur nú þegar fengið til liðsins leikmenn á borð við Luka Gasic frá Stjörnunni og DeDrick Deon Basile frá Stólunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×