Telja ríkið vera að brjóta samkomulag um börn með fjölþættan vanda Atli Ísleifsson skrifar 24. júní 2026 13:00 Frá undirritun sakomulagsins 19. mars 2025. Stjr Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga undrast vinnubrögð ríkisins við reglugerð um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir. Stjórnin telur að með reglugerðinni sé ríkið að brjóta samkomulag ríkis og sveitarfélaga um skýra ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda frá 2025.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þar segir að samkomulagið kveði á um að ríkið taki að sér framkvæmd og beri ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett séu utan heimilis. Þessi börn hafi að jafnaði verið um 35 á landinu öllu. „Með nýrri reglugerð hefur ríkið hins vegar einhliða endurskilgreint og þrengt þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið. Settar eru kerfislegar skorður sem útiloka börn frá aðgengi í viðeigandi úrræði þar sem ríkið stendur straum af kostnaði, þrátt fyrir mat sérfræðinga um þörf þeirra fyrir fjölþætta þjónustu. Engin fagleg rök eru fyrir því af hverju ríkið ætti ekki að sinna þessum börnum, eingöngu fjárhagsleg rök, en ríkið greiddi fyrir úrræði hópsins í fyrra á grundvelli samkomulagsins. Kostnaður vegna þjónustu við þessi börn er einfaldlega meiri en ríkið hafði gert ráð fyrir og því hefur ríkið ákveðið einhliða að endurskilgreina þessa hópa 15 mánuðum eftir að hafa undirritað samkomulag um ábyrgðaskiptingu við sveitarfélögin. Stjórn Sambandsins ítrekar að samkomulagið snérist um breytta ábyrgðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga til framtíðar en ekki um það að ríkið myndi leggja málaflokknum til ákveðið fjármagn. Ríkið tók að sér ábyrgð á framkvæmd og fjármögnun þjónustu við þennan hóp. Það er óásættanlegt að ríkið ætli nú að skilgreina hópinn með öðrum hætti en samið var um þar sem það fjármagn sem ríkið ætlaði til málaflokksins er ekki fullnægjandi. Þetta snýst ekki aðeins um einstaka reglugerð heldur traustið á milli ríkis og sveitarfélaga. Sveitarfélögin undirrituðu samkomulagið 19. mars 2025 í góðri trú um að þar væri lagður sameiginlegur grunnur að betri þjónustu við börn með flóknar þarfir. Nú er ríkið að ganga á bak orða sinna. Það hlýtur að vekja upp alvarlegar spurningar hjá sveitarfélögum um traust og trúverðugleika ríkisins þegar kemur að því að standa við gerða samninga,“ segir í tilkynningu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Börn og uppeldi Sveitarstjórnarmál Rekstur hins opinbera Félagsmál Heilbrigðismál Tengdar fréttir Ríkið tekur við börnum með fjölþættan vanda Ríkið hefur undirritað samkomulag ríkisins við Samband íslenskra sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda og uppbyggingu hjúkrunarheimila. Breytingunum er ætlað að einfalda verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og um leið styrkja fjárhag sveitarfélaga. Þau taka gildi um mitt þetta ár. 19. mars 2025 16:13 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Sjá meira
Ríkið tekur við börnum með fjölþættan vanda Ríkið hefur undirritað samkomulag ríkisins við Samband íslenskra sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda og uppbyggingu hjúkrunarheimila. Breytingunum er ætlað að einfalda verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og um leið styrkja fjárhag sveitarfélaga. Þau taka gildi um mitt þetta ár. 19. mars 2025 16:13