Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Birgir Olgeirsson skrifar 23. júní 2026 13:02 Hjónin Atli Bjarnason og Íris Rut Þorgeirsdóttir á Selfossi vara við svikurum sem nota nafn fyrirtækis í þeirra eigu til að selja gáma sem virðast ekki vera til. Þau segjast fyrst og fremst reyna að koma í veg fyrir að fleira fólk tapi peningum. Vilhelm/Aðsend Hjónin Atli Bjarnason og Íris Rut Þorgeirsdóttir hafa undanfarnar vikur reynt að koma í veg fyrir að fólk falli fyrir svikum þar sem nafn fyrirtækis í þeirra eigu er notað til að hafa fé af fólki.
Svikararnir hafa auglýst gáma til sölu í nafni AB gáma, fyrirtækis hjónanna, og sent fólki reikninga sem líta út fyrir að vera frá félaginu. Greiðslurnar hafa hins vegar verið lagðar inn á reikninga einstaklinga sem virðast í einhverjum tilvikum einnig vera fórnarlömb svikanna. Hafði millifært 300 þúsund inn á reikning konu Atli, sem er byggingarverktaki á Selfossi, fékk fyrir um tveimur vikum símtal frá manni sem spurði hvort hann væri að selja gáma í gegnum fyrirtækið. Atli hafði vissulega selt ruslagáma fyrir nokkrum árum, á meðan kórónuveirufaraldurinn stóð yfir, en ekki á síðustu árum. Maðurinn sem hafði samband hafði þá átt í samskiptum við konu sem sagðist selja honum gám í nafni AB gáma. Hann hafði millifært 300 þúsund krónur inn á reikning konunnar en ekki inn á reikning félagsins. „Greinilega orðið risasvindl“ Atli sagði manninum að allt benti til þess að um svik væri að ræða. Hann fékk auglýsinguna senda, tilkynnti hana til Facebook og ákvað í kjölfarið að kanna málið betur. Þá sá hann auglýsingu á Facebook þar sem gámar voru auglýstir í nafni AB gáma á verði sem Atli segir langt undir eðlilegu markaðsverði. „Þetta er þá greinilega orðið risasvindl og ég fer að fá skilaboð frá fólki sem er að fá reikning frá AB gámum á heimilisfangið okkar hjóna. Reikningurinn er með virðisauka og öllu. Á honum er óskað eftir því að millifært sé inn á ákveðinn reikning sem er tengdur kennitölu ungs manns á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Atli. Ræddi við unga manninn og föður hans Atli setti sig í samband við unga manninn og segir hann einnig virðast vera fórnarlamb svikanna. Samkvæmt Atla hafði maðurinn sjálfur fallið fyrir netsvindli þar sem honum var lofað lán. Í kjölfarið hafi óprúttnir aðilar komist yfir fjárhagsupplýsingar hans og nýtt þær til að taka við greiðslum frá fólki sem taldi sig vera að kaupa gáma. Atli segist einnig hafa rætt við föður unga mannsins vegna málsins. Önnur manneskja, kona með lögheimili á landsbyggðinni, hefur einnig verið skráð fyrir reikningi sem fólk var beðið um að millifæra inn á. Atli segist ekki hafa náð tali af henni. Náði að stöðva fimm til sex manns Að sögn Atla hafa svikararnir notað bæði nafn AB gáma ehf. og síðuna Heklabox.com í samskiptum við fólk. Hann segist hafa náð að stöðva fimm til sex manns áður en þeir millifærðu fjármuni. Atli telur að svikararnir hafi tekið upplýsingar af Facebook-síðu Stólpagáma og nýtt þær í fölskum auglýsingum. Hann hefur farið inn á samfélagsmiðla til að vara fólk við svikunum og tilkynnt málið til lögreglu. „Við erum bara að reyna að koma í veg fyrir að fleira fólk tapi peningum,“ segir Atli.
Lögreglumál Árborg Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira