Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 22. júní 2026 13:34 Land Rover jepparnir tveir. Klemenz Geir Klemenzson Erlendir ferðamenn sem ollu miklu tjóni með utanvegaakstri á Land Rover-bifreiðum þurftu að borga fleiri hundruð þúsunda í sekt en lögreglu þótti ekki ástæða til að gera jeppana upptæka. Fjallamaður meðlimur í 4x4 klúbbnum telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri.
Lögreglunni á Suðurlandi barst tilkynning um grófan utanvegaakstur í gær og var málið unnið með landverði. Tveir erlendir ferðamenn óku Land Rover jeppum og ollu skemmdum meðal annars við Einhyrning, Kötlujökul og á Emstruleið. Lögreglan á Suðurlandi hafði uppi á símanúmerum þeirra og boðaði þá upp á lögreglustöð þar sem þeir greiddu sekt upp á fleiri hundruð þúsunda en lögregla vildi þó ekki gefa upp nákvæma sektarfjárhæð. Páll Halldór Halldórsson fjallamaður segir í Bítinu í morgun að ekki sé hægt að verðmeta umrætt tjón, kallar eftir harðari viðurlögum og vekur athygli á því að samkvæmt lögum má gera bifreiðar upptækar. „Sektin þarf að hafa fælingarmátt. Við náum ágætlega til Íslendinga,“ sagði Páll Halldór í viðtalinu og bætti við að þeir næðu síður til útlendinganna. Sekt í samræmi við umfang skaðans Íris Edda Heimisdóttir aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi var innt eftir viðbrögðum við þessu í ljósi alvarleika málsins. „Lögin eru svo sem að mörgu leyti mjög skýr sem taka utan um þetta og samkvæmt sektarreglugerðinni, fyrirmælum frá ríkissaksóknara um þau brot sem ljúka má á slíkan hátt, er þar tilgreint sem sagt að það ákvarðist eftir eðli og umfangi hvers brots fyrir sig og það geti verið allt frá 10.000 krónum upp í eina milljón, sektin sem gefin er út fyrir slíkt.“ Með dómi sé hægt að gera umrædd ökutæki upptæk. „Það er eitthvað sem kom svo sem ekki til skoðunar í þessu tiltekna máli.“ Hún var spurð hvort utanvegaakstur færðist í aukana samhliða fjölgun ferðamanna. „Ég vil nú ekki segja mikið til um það hvort þetta sé að færast í aukana en vissulega er þetta eitthvað sem við erum að horfast í augu við reglulega, sama á hvaða tíma ársins það er, og ég er svo sem alveg sammála því að þetta er eitthvað sem þarf alveg að taka til skoðunar lagalega séð,“ segir Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi.
Utanvegaakstur Lögreglumál Ferðaþjónusta Bílar Umhverfismál Rangárþing eystra Tengdar fréttir Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Páll Halldór Halldórsson, fjallamaður og meðlimur 4x4 Ferðaklubbnum, segir leiðsögumenn tala um að utanvegaakstur tveggja ferðamanna um helgina sé sá versti sem þeir hafi séð í 40 ár. Hann telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. 22. júní 2026 09:07 „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Utanvegaökumennirnir sem sást til víða á hálendinu hafa þegar lokið málinu með sektargreiðslu. Mennirnir voru erlendir ferðamenn og keyrðu um á Land Rover jeppum. 21. júní 2026 22:06 „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Tveir erlendir ferðamenn á tveimur Land-Rover jeppum hafa keyrt utanvegar við hið minnsta þrjár náttúruperlur og skilið eftir sig djúp hjólför á Emstruleið, Kerlingarfjöll og við Kötlujökul. Lögregla rannsakar málið. 21. júní 2026 16:54 Mest lesið Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Innlent Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Fleiri fréttir Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Sjá meira
Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Páll Halldór Halldórsson, fjallamaður og meðlimur 4x4 Ferðaklubbnum, segir leiðsögumenn tala um að utanvegaakstur tveggja ferðamanna um helgina sé sá versti sem þeir hafi séð í 40 ár. Hann telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. 22. júní 2026 09:07
„Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Utanvegaökumennirnir sem sást til víða á hálendinu hafa þegar lokið málinu með sektargreiðslu. Mennirnir voru erlendir ferðamenn og keyrðu um á Land Rover jeppum. 21. júní 2026 22:06
„Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Tveir erlendir ferðamenn á tveimur Land-Rover jeppum hafa keyrt utanvegar við hið minnsta þrjár náttúruperlur og skilið eftir sig djúp hjólför á Emstruleið, Kerlingarfjöll og við Kötlujökul. Lögregla rannsakar málið. 21. júní 2026 16:54