Alan Greenspan er látinn Atli Ísleifsson skrifar 22. júní 2026 11:18 Alan Greenspan varð hundrað ára. EPA Alan Greenspan, hagfræðingur og fyrrverandi seðlabankastjóri Bandaríkjanna, er látinn. Hann varð hundrað ára gamall.
Bandarískir fjölmiðlar greina frá andláti Greenspan í dag og er þar vísað í tilkynningu frá eiginkonu hans. Hann hafði glímt við Parkinson um nokkurt skeið. Greenspan var skipaður seðlabankastjóri Bandaríkjanna árið 1987 af Ronald Reagan, þáverandi Bandaríkjaforseta. Greenspan gegndi stöðunni allt til ársins 2006, eða í forsetatíð Reagan, George Bush eldri, Bill Clinton og George W. Bush. Greenspan var um árabil einn áhrifamesti maður bandarískrar hagstjórnar, allt frá lokum kalda stríðsins og á tímum gríðarlegra tækniframfara. Hann átti sér þó einnig marga gagnrýnendur sem vildu meina að hann hefði átt sinn þátt í að leggja grunn að fjármálakrísunni 2008. Greenspan er sá maður sem hefur setið næstlengst í stóli seðlabankastjóra Bandaríkjanna, en sá sem lengst hefur setið er William McChesney Martin, frá 1951 til 1970. Eftir að Greenspan hætti sem seðlabankastjóri stofnaði hann ráðgjafafyrirtæki í Washington DC og skrifaði fjölda bóka. Ben Bernanke tók við stöðunni af Greenspan árið 2006 og sat til 2014. Þá tók Janet Yellen við en Jerome Powell gegndi stöðunni frá 2018 til 2026 eða þar til að Donald Trump Bandaríkjaforseti skipaði núverandi seðlabankastjóra, Kevin Warsh.
Bandaríkin Andlát Ronald Reagan George W. Bush Barack Obama George H. W. Bush Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira