Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Sigurgeir Þorkelsson skrifar 20. júní 2026 22:10 Svangir tónleikagestir þurftu að sætta sig við langar raðir. Vísir/Viktor Fréttastofu bárust ábendingar frá tónleikagestum á Þingvöllum um miklar tafir á tónleikasvæðinu vegna margmennis. Vonsvikinn gestur segir sviðið of lítið, áhorfendasvæðið rúmi ekki mannfjöldann og ekki sé nægt pláss í kringum matarvagnana. Tónlistarhátíðin Bergmál fór þar fram í dag en búist var við tuttugu þúsund gestum.
Fréttastofa bar áhyggjurnar undir Jakob Frímann Magnússon, aðalskipuleggjanda hátíðarinnar. Jakob segir stemninguna á svæðinu einstaka og margar fallegar kveðjur hafa borist frá þeim sem fylgist með í beinu streymi. „Við erum í skýjunum yfir þessum viðburði eins og allir gestir. Við erum að horfa upp á eitthvað sem ekki hefur átt sér áður stað! Ég veit ekki hvað maður gæti beðið um meira, hvað varðar staðsetningu, tónlist og veður. Í fullri auðmýkt er ég afar þakklátur öllum sem hafa komið að þessum viðburði.“ Gagnrýnir skipulagningu viðburðarins Vonsvikni gesturinn, fjölskyldukona sem hugðist gera sér glaðan dag með sínum nánustu, segir skammarlegt hve lítið hátíðarsvæðið sé. „Ástandið á Þingvöllum er galið. Það er örtröð alls staðar og allt stopp.“ Verst á ástandið að vera í kringum matarvagnana. Deilt hafði verið á í aðdraganda hátíðarinnar að gestir mættu ekki hafa með sér eigin matföng, tjaldstóla og regnhlífar. Konan lýsti því þannig að veggur af fólki hafi mætt fjölskyldunni við matarvagnana. Tuttugu til þrjátíu metra raðir séu við hvern vagn og þegar fólk fái matinn í hendurnar komist það hvorki lönd né strönd. Hún hafi ekki hafa kynnst slíku ástandi áður á öðrum fjölsóttum tónlistarhátíðum. Annar gestur sem fréttastofa heyrði frá sagði fólk þurfa að bíða í allt að tvo tíma eftir mat. Jakob Frímann sagði að vissulega væru sumir matarvagnanna mjög vinsælir og fólk þyrfti að bíða í röð en kannaðist að öðru leyti ekki við áhyggjur konunnar. „Maturinn er fljótafgreiddur og þeir sem eru að bíða eftir að borða eru að sjálfsögðu að hlusta á tónlistina.“ Tónleikagestur sem Vísir heyrði frá sagði allt að tveggja tíma bið eftir mat.Vísir/Viktor Svæðið rúmi ekki fjöldann Konan segir hátíðarsvæðið ekki rúma mannfjöldann. „Það er skammarlegt hversu lítið svæðið er. Þetta er svakalegt. Það voru bara seldir allt of margir miðar.“ Aðspurð segist hún ekki vera ein á þessari skoðun heldur hafi hún heyrt mikið talað um þetta í kringum sig á matarvagnasvæðinu. Jakob Frímann segir þetta af og frá. „Þetta er hið fullkomna svæði fyrir viðburði af þessum toga. Hér sjá allir, hér njóta allir og svæðið tekur vel utan um mann með fallegu útsýni að Öxarárfossi og Almannagjá.“ Tónleikagesturinn vonsvikni segir alls ekki tryggt að allir sjái á sviðið.Vísir/Viktor Skipulag bílastæða gott Aðspurð segir konan að það hafi tekið rúmar tvær klukkustundir að keyra á Þingvelli. Hún segir skipulagið á Þingvöllum gott þegar kemur að bílastæðum það sé fjöldi gesta sem skemmi fyrir. Hún útskýrir að gestir bókuðu stæði þegar miðar voru keyptir. Henni þyki það þó að einhverju leyti falinn kostnaður ofan á auglýst miðaverð. Þá hafi fjölskyldan ekki áttað sig á því fyrr en í gær að þeim var út frá því úthlutað hvaða leið þau þyrftu að fara heim af svæðinu. Umræddri fjölskyldu var gert að keyra í átt að Selfossi og þaðan á höfuðborgarsvæðið. Konan sendi Vísi mynd af hinum mennska vegg.Innsent Konan lýsir undrun yfir því að hafa hingað til ekki rekist á neina fjölmiðlaumfjöllun um fjölmennið sem hún lýsir. „Það er svo mikið af fólki að það er ekki hægt að hreyfa sig.“ Bransinn undrandi á leiðindum landans Vísir birti í gær frétt af undrun manna innan skemmtana- og viðburðahaldsbransans á því hve leiðinlegir Íslendingar geti verið. Byggðist undrun þeirra meðal annars á fréttum þess að landsmenn væru undrandi yfir að ekki mætti koma með eigin veitingar á viðburðinn. „Stundum held ég að við Íslendingar mættum vera örlítið örlátari á hrósið. Ef einhver ákveður að leggja mánuði eða ár af vinnu, fjármunum og svefni í að skapa upplifun fyrir annað fólk, þá er fyrsta viðbragðið kannski ekki að leita að því sem má gagnrýna heldur einfaldlega að óska því góðs gengis,“ sagði Einar Bárðarson í færslu um málið.
Þingvellir Kaleo Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Bláskógabyggð Veitingastaðir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Fleiri fréttir „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Sjá meira