Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Agnar Már Másson skrifar 19. júní 2026 19:12 Hitnað hefur undir Starmer eftir sögulegt afhroð flokksins í sveitarstjórnarkosningum. Getty Ráðherrar í ríkisstjórn breska forsætisráðherrans Keirs Starmer eru sagðir hafa beðið forsætisráðherrann að segja af sér, bæði sem formaður Verkamannaflokksins og sem leiðtogi ríkisstjórnarinnar. Rísandi stjarna í flokknum hefur orðuð við að leysa hann af hólmi.
Sætið undir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur hitnað ört síðasta sólarhring frá því að Andy Burnham, vinsæll borgarstjóri Stór-Manchester-svæðisins, var kjörinn þingmaður Makerfield í aukakosningum sem haldnar voru í gær. Ljóst þykir að leiðtogaslagur sé í uppsiglingu í Verkamannaflokknum og hefur Burnham verið orðaður við formennsku. BBC greindi frá því í dag að samgönguráðherrann Heidi Alexander hafi átt samtal við Starmer á bak við luktar dyr í dag þar sem hún hafi beðið hann um að leggja fram tímaáætlun um að láta af embætti. Það væri til þess að tryggja skilvirk stjórnarskipti við næsta leiðtoga. Samkvæmt breska dagblaðinu Times hafði fjöldi ráðherra í hyggju í dag að segja við Starmer að hann ætti af sér sem formaður Verkamannaflokksins og forsætisráðherra. Blaðið skrifar að hann muni íhuga málið um helgina. Tveir aðrir ráðherrar, Ed Miliband og Shabana Mahmood, hafa áður krafið hann um slíka tímaáætluun. Guardian hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni í ríkisstjórn Starmers: „Allir telja að þetta sé búið og allir vilja að þetta brotthvarf verði snyrtilegt og gert af reisn.“ Hrikt hefur í stoðum ríkisstjórnar Starmers undanfarið en hún hefur verið gríðarlega óvinsæl um langa hríð og forsætisráðherrann sjálfur átt í vök að verjast vegna fjölda mála, þar á meðal fyrir að skipa sendiherra í Bandaríkjunum sem hafði náin tengsl við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Varnarmálaráðherrann sagði meðal af sér í byrjun mánaðar vegna ósættis er varðar fjármögnun varna- og öryggismála. Þungt tap Verkamannaflokksins í sveitarstjórnarkosningum í síðasta mánuði varð til þess að fjöldi þingmanna flokksins krafðist þess að Starmer segði af sér en hann sat sem fastast. Burnham, sem sagði af sér þingmennsku 2017, er kominn aftur á breska þingið og hann þykir vera efstur á blaði hvað varðar hugsanlegan eftirmann Starmers, bæði sem leiðtogi Verkamannaflokksins og sem Skoðanakönnun Yougov frá því í maí benti til þess að 59 prósent félaga í Verkamannaflokknum styddu Burnham í mögulegu leiðtogakjöri en 37 prósent Starmer. Starmer óskaði Burnham til hamingju með sigurinn í færslu á samfélagsmiðli og fagnaði því að kjósendur hefðu valið von og bjartsýni Verkamannaflokksins fram yfir sundrung og hatur. Burnham vann öruggan sigur á Rob Kenyon, frambjóðanda Umbótaflokksins, þjóðernisíhaldsflokks sem fer með himinskautum í skoðanakönnunum á landsvísu.
Bretland Kosningar í Bretlandi Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira