„Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ Hjörvar Ólafsson skrifar 16. júní 2026 23:28 Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var sáttur við ýmislegt en hundfúll með annað í kvöld. Vísir/Guðmundur Hermanni Hreiðarssyni, þjálfara Vals, fannst dómarateymið gera afdrifarík mistök í tveimur stórum atvikum þegar lið hans laut i lægra haldi fyrir ÍA í kvöld. „
Ég er að sjálfsögðu grautféll með niðurstöðuna en það er fjölmargt jákvætt sem við getum tekið út úr frammistöðunni. Við náðum upp góðri pressu og varnarleikurinn framarlega á vellinum sem við höfum verið að vinna í var mun betri en hingað til á tímabilinu,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, eftir leikinn. „Við unnum oft boltann á hættulegum stað og komum okkur í hættulegar stöður. Við fórum hins vegar illa með þær stöður og það vantaði herslumuninn upp á þegar hólminn var komið. Það er mjög svekkjandi að við höfum ekki náð að nýta þær stöður betur,“ sagði Hermann þar að auki. „Það sem er aftur á móti mesta svekkelsið eftir þennan leik er að það voru tvær stórar ákvarðanir hjá dómurunum sem féllu á móti okkur. Í fyrra lagi braut Viktor á Markus í markinu sem þeir skora og svo áttum við að fá pjúra víti þegar Albin er tæklaður niður,“ sagði hann svekktur. „Eins og áður segir er margt jákvætt sem við tökum úr þessum leik í næstu verkefni. Það er bara áfram gakk og lítið annað að gera en að dusta þetta tap strax af sér. Spilamennskan var flott þó uppskeran hafi því miður verið engin,“ sagði Hermann borubrattur.
Íslenski boltinn Besta deild karla Valur Mest lesið Blaðamannafundi Heimis frestað og von á yfirlýsingu Fótbolti Ringulreið hjá Heimi og leikur við Ísrael í uppnámi Fótbolti Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Fótbolti „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Sjáðu stórkostlega aukaspyrnu Daníels Tristans gegn Frökkum Fótbolti Allt vitlaust á landsliðsæfingu þegar ungir mættu gömlum Sport Ætlar ekki sömu leið og Óskar Hrafn: „Væri óskandi“ Fótbolti Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport Fleiri fréttir Ísland - Eistland | Nýtt upphaf í Þjóðadeildinni Byrjunarlið Íslands gegn Eistlandi: Stefán Teitur og Daníel í hjartanu - Orri fremstur Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ ÍBV - Breiðablik | Toppliðið fer til Eyja „Held að það sé ekki mikið vesen“ Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér Ringulreið hjá Heimi og leikur við Ísrael í uppnámi Lítur til Svía: „Þetta getur gefið þér helling“ „Ekkert feimnir að tala um það“ Ætlar ekki sömu leið og Óskar Hrafn: „Væri óskandi“ Blaðamannafundi Heimis frestað og von á yfirlýsingu „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ „Höfum talað digurbarkalega um það“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Sjáðu stórkostlega aukaspyrnu Daníels Tristans gegn Frökkum Lærisveinn Heimis tók af skarið: „Leikurinn við Ísrael ætti ekki að fara fram“ Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Umfjöllun: Ísland - Frakkland 1-1 | Draumamark Daníels og eitt stig Kósíheit inni og volg mjólk eftir æfingu: „Galið að skjóta svona á okkar kynslóð“ Arnar og Orri sátu fyrir svörum daginn fyrir fyrsta leik Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Sjáðu mörkin í Osló og Dorgu nota Ödegaard eins og hundasleða Kominn fram úr Zlatan og Ronaldo Segir Heimi skorta skilning og vill hann burt „Maður verður með hjartað í buxunum næstu tvær helgar“ Stressandi dagur: „Gerðist mjög seint“ Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Sjá meira