Fótbolti

Mikael meiddur af velli í Belgíu

Sindri Sverrisson skrifar
Mikael Anderson á ferðinni í 3-0 sigrinum gegn Búlgaríu á dögunum.
Mikael Anderson á ferðinni í 3-0 sigrinum gegn Búlgaríu á dögunum. vísir/Anton

Landsliðsmaðurinn Mikael Anderson meiddist eftir tuttugu mínútna leik með AGF gegn Gent í Belgíu í kvöld, í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta.

Mikael og Daníel Leó Grétarsson voru báðir í byrjunarliði AGF en spiluðu þó ekki mikið því Mikael meiddist og varð að fara af velli og Daníel var einnig skipt af velli eftir fyrri hálfleikinn. Ekki er ljóst hvort það var vegna meiðsla.

Staðan var markalaus í hálfleik og alveg fram á 87. mínútu þegar Hyllarion Goore skoraði sigurmarkið.

Mikael virtist fá högg á sköflunginn en ekki liggur fyrir hve alvarleg meiðsli hans eru nú þegar rétt innan við mánuður er í næstu landsleiki.

Elías Rafn Ólafsson verður frá keppni í talsverðan tíma vegna meiðsla á nýra og var því ekki í leikmannahópi Midtjylland sem gerði 1-1 jafntefli við Egnatia í Albaníu. Leikurinn var færður frá Tirana til Elbasan vegna mikilla stúdentaóeirða í höfuðborginni.

Af öðrum úrslitum í fyrri skammti kvöldsins í Sambandsdeildinni má nefna að tyrkneska liðið Trabzonspor vann 4-2 útisigur gegn KuPS í Finnlandi og skoraði Mohamed Salah eitt marka gestanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×