Körfubolti

Ásta Júlía kveður Val

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ásta Júlía í leik með Val.
Ásta Júlía í leik með Val. Vísir/Vilhelm

„Verð ævinlega þakklát fyrir að hafa verið hluti af þessum klúbbi og liði í 9 ár. Þakklát fyrir liðið mitt, fólkið og vini út lífið. Nú taka nýir og spennandi tímar við.“

Þetta skrifar landsliðskonan Ásta Júlía Grímsdóttir í færslu á Instagram. Hún er að yfirgefa Valsliðið og mun því ekki leika áfram með liðinu í Bónus-deildinni.

Ekki er ljóst hvert Ásta fer næst en samkvæmt heimildum íþróttadeildar hefur Njarðvík haft samband við leikmanninn og gæti næsti áfangastaður hennar verið hjá Íslandsmeisturunum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×