Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Freyja Þórisdóttir skrifar 14. júní 2026 08:21 Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt. Vísir/Vilhelm Margt var um manninn og mikið um dýrðir í veislum gærkvöldsins en um það bil tvö þúsund og sjö hundruð háskólanemar voru brautskráðir frá Háskóla Íslands. Lögreglan fékk ítrekaðar tilkynningar um tónlistarhávaða í Reykjavík en meðal annarra mála voru innbrot í hverfi 101 og líkamsárás þar sem þrír voru handteknir. Á Austurlandi voru ökumenn hins vegar til fyrirmyndar að sögn lögreglu.
Alls voru um hundrað og tvö mál skráð í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan 17:00 í gær en að minnsta kosti sjö voru vistaðir í fangageymslu á tímabilinu. Höfð voru afskipti af níu manns og þau handtekin fyrir brot á lögreglusamþykkt í Reykjavík en þau voru síðar ýmist vistuð sökum ástands eða látin laus að skýrslutöku lokinni. Tveir voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglustöðvar 4 sem sinnir verkefnum í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi. Annar ók á 112 kílómetrum á klukkustund þar sem 80 kílómetrar á klukkustund eru hámarkshraði en hinn á 200 kílómetrum á klukkustund þar sem 80 kílómetrar á klukkustund eru hámarkshraði. Ökumenn til fyrirmyndar Í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem sinnir útköllum í Kópavogi og Breiðholti, voru þrír handteknir eftir líkamsárás og tveir aðilar kærðir fyrir ýmis umferðarlagabrot. Lögreglan á Austurlandi birti færslu í gær á Facebook þar sem fram kemur að um hundrað ökumenn hafi verið stöðvaðir yfir daginn á Þjóvegi 1 við Reyðarfjörð vegna umferðareftirlits. „Kannað var með ökuréttindi ökumanna og bílbeltanotkun, dekkjabúnað ökutækja (nagladekk), ljósabúnað þeirra og skoðun sem ástand ökumanna. Er skemmst frá því að segja að allir ökumenn voru með sitt á hreinu og ökutækin í lagi, utan þess að einn reyndist ekki geta framvísað skilríkjum er sýndu fram á gild ökuréttindi,“ segir í færslunni. Lögreglan muni halda eftirliti sem þessu áfram en að niðurstaðan hafi verið „afskaplega ánægjuleg og verðskuldar hrós til ökumanna og eigenda ökutækja sem greinilega láta hvergi skeika að sköpuðu. Vel gert.“
Lögreglumál Reykjavík Kópavogur Mosfellsbær Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira