Wembanyama sleppur við refsingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2026 20:15 Það er mikil barátta í kringum Victor Wembanyama en hér hann í baráttu við Karl-Anthony Towns í liði New York Knicks. Getty/ Al Bello Stjörnuleikmaður San Antonio Spurs, Victor Wembanyama, fær ekki óíþróttmannslega villu eftir á þrátt fyrir að hrinda Jalen Brunson, leikstjórnanda Knicks, í þriðja leik lokaúrslita NBA.
Wembanyama verður því áfram með tvö stig fyrir grófar villur í úrslitakeppninni. Leikmenn sem ná fjórum stigum fyrir grófar villur fá sjálfkrafa eins leiks bann. Atvikið átti sér stað þegar tæpar fimm mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta í leiknum á mánudag. Brunson reyndi að setja hindrun á hinn 2,24 metra háa Wembanyama nálægt vítalínunni og þegar miðherjinn sneri sér við hrinti hann leikstjórnanda Knicks í gólfið. Engin villa var dæmd í leiknum þrátt fyrir tafarlaus mótmæli frá New York. Monty McCutchen, aðstoðarforstjóri dómaramála og þjálfunar hjá NBA, sagði í þættinum „NBA Today“ á ESPN fyrr á þriðjudag að dæma hefði átt villu í atvikinu. Deildin ákvað hins vegar að uppfæra ekki atvikið í grófa villu. Wembanyama fékk tvö stig fyrir grófa villu fyrr í úrslitakeppninni eftir að hafa gefið Naz Reid, framherja Minnesota Timberwolves, olnbogaskot í kjálkann í fjórða leik í annarri umferð. Stjarna Spurs fékk þá grófa villu af stigi tvö fyrir of harkalega snertingu fyrir ofan háls, sem leiddi til brottvísunar. Hann fékk enga frekari refsingu, þar með talda sekt. Næsti leikur, sá fjórði í úrslitaeinvíginu, fer fram í New York í kvöld en þar reynir Spurs að jafna metin en Knicks-liðið kemst í 3-1 með sigri.
NBA Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Kane bjargaði enskum Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Golf Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Fótbolti Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Fótbolti Fleiri fréttir Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Sjá meira