Innlent

Virkjunar­leyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós

Árni Sæberg skrifar
Framkvæmdir á vegum Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar við Þjórsá hafa staðið yfir í nokkra mánuði, þrátt fyrir málshöfðun landeigenda að ánni.
Framkvæmdir á vegum Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar við Þjórsá hafa staðið yfir í nokkra mánuði, þrátt fyrir málshöfðun landeigenda að ánni. Vísir/Anton Brink

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gefið grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Um er að ræða aðra atrennu en fyrra leyfi var ógilt í Hæstarétti síðasta sumar og í kjölfarið var nýtt leyfi gefið út á grundvelli nýrra laga.

Dómur þess efnis var kveðinn upp rétt fyrir klukkan 15. Hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Þar sem um dóm héraðsdóms er að ræða má fastlega gera ráð fyrir að honum verði áfrýjað til Landsréttar.

Málið á sér nokkuð langan aðdraganda en Umhverfis- og orkustofnun gaf út virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í desember í fyrra eftir að Hæstiréttur hafði ógilt fyrra leyfi í júlí sama ár.

Áður en Hæstiréttur kvað upp dóm sinn hafði umhverfis, orku og loftslagsráðherra breytt raforkulögum og lögum um stjórn vatnamála. Í kjölfar lagabreytingarinnar sögðu bæði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, og forsvarsmenn Landsvirkjunar að lagagrundvöllur fyrir útgáfu virkjunarleyfis væri skýr.


Tengdar fréttir

Mikill meiri­hluti hlynntur Hvamms­virkjun

Tæp sextíu prósent svarenda í skoðanakönnun segjast hlynnt Hvammsvirkjun í Þjórsá en aðeins rúmur fimmtungur er andsnúinn. Gríðarlegur munur er á afstöðu kynjanna til virkjunarinnar en mun fleiri karlar eru fylgjandi henni en konur.

Davíð hafi lagt Golíat

Náttúruverndarsamtök fagna niðurstöðu Hæstaréttar sem staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms og felldi endanlega úr gildi virkjanaleyfi fyrir Hvammsvirkjun, í máli sem landeigendur við Þjórsá höfðuðu gegn ríkinu og Landsvirkjun. Þau segja Davíð hafa lagt Golíat.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×