Þorsteinn Ólafsson er látinn Áróra L Davíðsdóttir skrifar 10. júní 2026 11:08 Þorsteinn Ólafsson var meðlimur Oddfellowreglunnar um árabil og allt til aldursloka Þorsteinn Ólafsson, efnafræðingur og fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, er látinn, 75 ára að aldri.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum. Þorsteinn lést þann 5. júní. Þorsteinn fæddist í Keflavík 15. mars 1951. Foreldrar hans voru Ólafur A. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri, og Hallbera Pálsdóttir, húsmóðir. Þorsteinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1972 og síðar prófi í efnafræði frá Lundarháskóla í Svíþjóð árið 1977. Hann starfaði sem efnafræðingur hjá lyfjafyrirtækinu AB Hässle í Gautaborg og eftir heimkomu frá Svíþjóð hóf hann störf hjá Efnaverksmiðjunni Sjöfn á Akureyri. Þegar yngsta dóttir Þorsteins greindist með hvítblæði 1988 söðlaði Þorsteinn um og kom að stofnun Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna (SKB) ásamt öðrum foreldrum barna með krabbamein. Hann varð fyrsti formaður og framkvæmdastjóri félagsins. Starfsferlinum lauk Þorsteinn hjá Olís en þar starfaði hann til fjölda ára. Þá var Þorsteinn meðlimur Oddfellowreglunnar um árabil og allt til aldursloka. Þorsteinn hóf ungur að stunda knattspyrnu og hóf hann feril sinn sem markvörður hjá ÍBK / Keflavík og í framhaldinu hjá Perstorps SK. Atvinnumannaferill Þorsteins hófst árið 1980 með samningi við IFK Göteborg og endaði sviplega með slæmu fótbroti í æfingaleik fyrir keppnistímabilið 1981. Þorsteinn átti stutt tímabil með IFK Trollhättan áður en hann gerði samning við Þór á Akureyri og var þá alkominn heim. Í lok ferilsins snéri Þorsteinn sér að þjálfun, var spilandi þjálfari með Þór Akureyri, þjálfari ÍF Magna, Keflavíkur, Hauka og Víðis í Garði. Hann lauk ferlinum 1992 sem spilandi þjálfari með Víði. Þorsteinn varð Íslandsmeistari með gullaldarliði ÍBK árin 1969, 1971 og 1973 og síðar bikarmeistari árið 1975. Á ferlinum spilaði Þorsteinn á móti stærstu félögum í Evrópu, eins og Real Madrid, Arsenal og Everton svo eitthvað sé nefnt. Aukinheldur átti Þorsteinn að baki 16 landsleiki á árunum 1971 – 1980. Eftirlifandi eiginkona Þorsteins er Guðný Eiríksdóttir fædd 1953. Með fyrri eiginkonu, Katrínu S. Guðjónsdóttur, átti Þorsteinn dæturnar Sólveigu, Höllu, Stellu Maris og Söndru. Synir Guðnýjar og stjúpsynir Þorsteins eru Guðbjörn og Bjarki. Barnabörn Þorsteins eru fimmtán og barnabarnabörnin sjö.
Andlát Reykjanesbær Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Sjá meira