„Þær eru drullugóðar í fótbolta“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 9. júní 2026 22:31 Diljá Ýr Zomers í baráttu við hina spænsku Lucíu Corrales í leiknum í kvöld. Vísir/Anton Diljá Ýr Zomers hafði í nógu að snúast í hægri bakverði þegar Ísland tapaði 1-6 fyrir Spáni í lokaumferð A3 riðils undankeppni HM 2027 í fótbolta á Laugardalsvelli í kvöld. Spánn fer beint á HM og Ísland er á leið í umspil í október. „
Þetta var erfitt. Þær eru drullugóðar í fótbolta og það er margt sem við getum gert betur. Við þurfum bara að skoða það núna saman. Að sama skapi erum við einbeittar á að mæta af krafti í næstu umspilsleiki og klára það sem við ætlum að klára. Markmiðið er að komast á HM og það er það eina sem skiptir máli, að klára það,“ sagði Diljá í samtali við Vísi eftir leik. Þrátt fyrir að spila oftast sem vængmaður var henni stillt upp í vængbakverði í kvöld, stöðu sem Diljá hefur áður spilað með landsliðinu. Þar sem Spánn einokaði boltann var hún í reynd í hægri bakverði og komst prýðilega frá sínu í erfiðum leik. Þær koma þá með aðrar lausnir. „Mér leið ágætlega. Ég spilaði sömu stöðu á móti Englandi og ég og Guðrún [Arnardóttir] þurftum að leysa þetta ágætlega. Þær voru eitthvað að komast upp á okkur en á sama tíma er alltaf þægilegt að hafa Guðrúnu fyrir aftan sig. Mér fannst við leysa þetta ágætlega. Þær þrefalda á mann á kantinum og við reynum að leysa það. Við vildum reyna að halda Söndru [Maríu Jessen] og Thelmu [Karen Pálmadóttur] uppi í byrjun og kannski gerði það okkur aðeins erfiðara fyrir. Þær eru drulluerfiðar að spila á móti og maður heldur að maður sé með einhverjar lausnir en þær koma þá bara með eitthvað annað,“ sagði Diljá. Hún er spennt fyrir komandi umspilsleikjum síðar á árinu. „Þó að við höfum tapað stórt í dag þá sýndum við á móti Englandi að við getum átt mjög góða leiki á móti góðum liðum. Stundum eigum við, ef eitthvað er, auðveldara með að gefa betri liðum leiki. Nú er bara fókus á okkur sjálfar og að mæta sem bestar í þá leiki,“ sagði Diljá Ýr Zomers.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Sjá meira