Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Sigurgeir Þorkelsson skrifar 9. júní 2026 22:03 Hunan-hérað er þekkt fyrir mikla náttúrufegurð sem á meðal annars að hafa veitt innblástur fyrir plánetunni Pandóru í Avatar. Wikipedia/Getty Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest. „
Ég hef verið mjög forvitinn um Kína og þegar sendiráðið hefur skipulagt opna viðburði hef ég mætt reglulega, rætt við sendiherrann og sýnt mikla athygli,“ segir Sæþór og þakkar þessari athygli sinni því að hafa orðið fyrir valinu sem fulltrúi Íslands. „Síðan sér maður bara kínverska sendiráðið sýna miklu meiri diplómatískan áhuga heldur en til dæmis sendiráð Frakklands eða Bandaríkjanna. Maður sér að þau forgangsraða því að vekja athygli á Kína og fá ungt fólk í Evrópu til að sýna málefninu áhuga.“ Dagskrá ferðarinnar mun leiða Sæþór bæði til Peking og Hunan-héraðs. Hunan er staðsett sunnar í landinu og er þekkt fyrir mikla fjallafegurð. Þar má einnig heimsækja fæðingarstað byltingarleiðtogans mikla, Maó Zedong. „Við munum heimsækja fyrirtæki og hitta flokksfólk í Kommúnistaflokknum, síðan er þetta líka menningarheimsókn.“ Sæþór þarf að sjá sjálfur fyrir flugfarinu en þegar komið er til Kína er öll dagskrá ráðstefnunnar greidd af kínverska ríkinu. Í núverandi umhverfi, þar sem farmiðaverð hækkar dag frá degi, er Sæþór spenntur fyrir því að beint flug milli Íslands og Kína komist á laggirnar. Spennandi ferð framundan Sæþór er spenntur fyrir því að fá að sjá meira af Kína sem hann lítur mjög upp til. Hann hlakkar til að prófa háhraðlestakerfi Kína, sem er hið stærsta í heimi, og að fá tækifæri til að bera saman bækur við aðra Evrópubúa um hvernig almenningsálit er gagnvart Kína í þeirra heimalöndum. Mest hlakkar Sæþór þó til að fara einsamall í kvöldgöngu og upplifa það að vera í stórborg en vera samt fullkomlega öruggur. Sæþór vonast til að fáir verði á ferli en áttar sig á því að þar sé hann mögulega að biðja um of mikið. „Ég veit að þetta er erfitt í Kína, þar er mjög margt fólk.“ Kína standi Bandaríkjunum framar að ýmsu leyti Sæþór segir að í Kína sé ósköp lítið um ofbeldi og glæpi, sem sé þveröfug saga á við fæðingarland hans, Bandaríkin. „Í Bandaríkjunum er þetta svona út um allt, Los Angeles, Washington, Dallas, það eru fjölmargir staðir þar sem ég myndi ekki labba um einn að kvöldi. Mig langar að upplifa þessa tilfinningu, að vera í stórborg, umkringdur fólki en vera ekki með sömu tilfinningu í maganum og í bandarískri stórborg.“ Sæþór segist ekki geta fullyrt að hann muni koma til baka með þekkingu í farteskinu sem nýst gæti í flokksstarf Sósíalistaflokks Íslands. Mögulega muni flokkurinn þó halda viðburð í samstarfi við kínverska sendiráðið þegar heim er komið þar sem Sæþór segir betur frá því sem hann fékk að sjá og upplifa í ferðinni. Sæþór ítrekar þó að boðinu til Kína sé beint til hans persónulega en ekki hans sem fulltrúa flokksins. Sæþór hefur ekki áhyggjur af því að þurfa að horfa upp á misskiptingu auðs, þar hafi Xi Jinping forseti tekið til hendinni. „Þetta hefur minnkað síðan Xi tók við sem forseti, síðan hann tók við hefur misskipting minnkað og það má þakka herferð hans gegn spillingu," segir Sæþór, en hann hefur áður lýst aðdáun sinni á Xi forseta í viðtali við Vísi. "Ég kem frá Bandaríkjunum," heldur Sæþór áfram, "þaðan sem ríkir einhver mesti ójöfnuður í heimi, og það er raunar stór ástæða fyrir því af hverju ég fluttist til Íslands.“ Sæþór segir að það sitji enn í honum að horfa upp á fólk sem ekki hefði aðgang að heilbrigðisþjónustu og þurfti að reiða sig á árlegan viðburð þar sem heilbrigðisstarfsfólk gaf tíma sinn sem sjálfboðaliðar og veitti sjúkraþjónustu í tjaldi. „Fólk byrjaði að tjalda til að mynda röð áður en það opnaði. Ég kem sjálfur frá mjög ójöfnu landi og býst ekki við að sjá eitthvað svipað í Kína.“ Þá segir Sæþór erfitt að horfa upp á heimilisleysi í Bandaríkjunum, sem sé landlægt vandamál. „Mig langar að fara til Kína og sjá hvernig þetta var gert, að lyfta átta hundruð milljónum manna úr fátækt.“ Þetta sé eitthvað sem ríkisstjórn Kína hafi tekið á en á sama tíma hafi ríkisstjórnir hérlendis og í Bandaríkjunum verið sinnulausar gagnvart fátækt. Sæþór segist aðspurður ekki búast við að fá að hitta hinn margmærða leiðtoga Kína, Xi Jinping. „Ég held ég verði ekki jafn heppinn og Halla og fái að hitta Xi sjálfur,“ segir Sæþór, sem vísar hér til fundar Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, með forseta Kína á síðasta ári. „Ætli ég verði ekki bara að bjóða honum til Íslands.“
Sósíalistaflokkurinn Kína Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Hópur fólks sem samanstendur af tólf félögum í Sósíalistaflokki Íslands andmælir fundarboðun og þeim ákvörðunum sem teknar voru á aðalfundi flokksins sem fór fram um helgina, 6.–7. júní, og segir hann hafa verið skipulagðan í leynd. 8. júní 2026 17:48 Kínaforseti óskar Höllu til hamingju með sigurinn Xi Jinping, forseti Kína, óskaði Höllu Tómasdóttur, nýkjörnum forseta Íslands, til hamingju með sigur hennar í nýafstöðnum kosningum. 4. júní 2024 21:30 Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Fleiri fréttir „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Sjá meira
Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Hópur fólks sem samanstendur af tólf félögum í Sósíalistaflokki Íslands andmælir fundarboðun og þeim ákvörðunum sem teknar voru á aðalfundi flokksins sem fór fram um helgina, 6.–7. júní, og segir hann hafa verið skipulagðan í leynd. 8. júní 2026 17:48
Kínaforseti óskar Höllu til hamingju með sigurinn Xi Jinping, forseti Kína, óskaði Höllu Tómasdóttur, nýkjörnum forseta Íslands, til hamingju með sigur hennar í nýafstöðnum kosningum. 4. júní 2024 21:30