„Þær eru velkomnar á Laugardalsvöll“ Andri Broddason skrifar 9. júní 2026 16:01 Sædís Rún Heiðarsdóttir er spennt fyrir leiknum gegn heimsmeisturunum í kvöld. VPE/Vísir Sædís Rún Heiðarsdóttir er leikmaður Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni. Hún er mætt til Íslands þar sem landsliðið á leik gegn heimsmeisturum Spánar í kvöld. „
Við höfum það bara mjög fínt hér á Íslandi. Það hefur sjaldan verið svona gott veður þannig að við nýtum alla sólargeislana sem við getum fengið,“ segir Sædís Rún ánægð með að vera komin heim. Ísland fékk þrjú mikilvæg stig sem tryggði Íslandi þriðja sætið í riðlinum. Sædís sagði liðið hafa gert það sem þurfti til að vinna leikinn. „Þetta var kannski ekki fallegasti fótbolti sem við höfum spilað, en sumir leikir eru bara svoleiðis. Maður þarf bara að gera það sem leikurinn krefst og við gerðum það vel.“ Sædís sagðist ekki hafa haft áhyggjur af því að missa leikinn úr höndunum á föstudaginn. Úkraína fékk nokkur góð færi en náði ekki að nýta þau og leikurinn endaði 1-0. „Það komu færi á báða bóga en við náðum að halda þeim í skefjum.“ Hún bætti við að Úkraína hefði viljað senda mikið af löngum boltum sem Ísland gat ráðið vel við. Heimsmeistarar Spánar eru í góðu formi eftir að hafa unnið England í síðasta leik 4-0. Sædís er spennt fyrir leiknum enda ekki alltaf sem maður fær að keppa á móti þeim bestu í heimi. „Það eru forréttindi að spila svona leiki, þetta eru liðin sem maður vill móta sig við. Þær eru velkomnar á Laugardalsvöll.“ Íslenska liðið býst við öðruvísi leik á móti Spáni heldur en Úkraínu en leikurinn leggst vel í stelpurnar. Sædís ítrekar að þó að Spánverjar séu heimsmeistarar þá séu þær mannlegar og hægt sé að særa þær. Liðið fer í leikinn með sigur í huga og að bæta frammistöðu liðsins en lykilatriði er að halda varnarleiknum góðum. „Við förum í alla leiki til að vinna þá. Fyrst og fremst viljum við sjá framfarir hjá okkur. Við viljum bæta hlutina sem við erum búnar að vera að æfa.“ Í leiknum gegn Úkraínu spilaði Sædís allan leikinn en tekur byrjunarliðssætinu ekki sem sjálfsögðum hlut. „Maður reynir að standa sig vel með sínu félagsliði og vonandi helst það í hendur við sæti í byrjunarliði landsliðsins. En síðan tekur maður bara því hlutverki sem maður fær.“ Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að neðan Klippa: Sædís Rán Heiðarsdóttir fyrir leik gegn Spáni
HM 2027 í Brasilíu Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Grindavík - Njarðvík | Stórslagur á Suðurnesjunum Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira