Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar 5. júní 2026 12:01 Í grein hér á Vísi fjalla þeir Benedikt S. Benediktsson framkvæmdastjóri SVÞ, Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins um fyrirkomulag opinbers eftirlits . Þar lýsa þeir yfir stuðningi við þá hugmynd að eftirlit verði „samræmt“ með því að færa það frá sveitarfélögunum yfir til ríkisstofnanna. Það kann að hljóma skynsamlega við fyrstu sýn, sérstaklega í ljósi þess hvernig ríkisstjórnin hefur kynnt málið Ráðherrar hafa talað um sparnað, hagræðingu og einföldun., En stóra spurningin er þessi: Verðu niðurstaðan í raun einfaldara og ódýrara eftirlit, eða aðeins dýrara, fjarlægara og brothættara kerfi? Eftirlitsstofnun Evrópusambandsins hefur gert athugasemdir um ósamræmi í opinberu eftirliti á Íslandi. Það ósamræmi er raunverulegt. En það varð ekki til vegna þess að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafi starfað um landið. Ríkisvaldið hefur á liðnum árum vanrækt þá skyldu sína að vinna að samræmingu til samræmis við þær tilskipanir sem aðild okkar að EFTA gerir kröfu um. Samræming samkvæmt lögum og reglugerðum hér á landi og reglugerðum EB er á ábyrgð ráðuneyta og þeirra yfirstofnanna sem hafa með þennan málaflokk að gera, þ.e. atvinnuvegaráðuneyti, umhverfis- orku- og loftslagsráðuneyti, Matvælastofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar. Ef þessi stjórnvöld sinna ekki skyldum sínum breytist ekkert við það eitt að færa verkefni milli stjórnsýslustiga. Þá verður ósamræmið einfaldlega flutt úr einu skipuriti yfir í annað. Það að færa allt opinbert eftirlit með matvælum, hollustuháttum og mengunareftirlit undir þessar stofnanir, samræmir ekki eftirlitið, sem á að vinnast frá starfsstöðum þeirra víða um landið. Ef ráðuneytin sinna ekki þeirri grundvallarskyldu sinni að gefa út reglugerðir og yfirstofnanir málaflokkanna vinna ekki að útgáfu leiðbeininga og verklagsregla, né samræma gagnavinnslu úr opinberu eftirliti, þá sitjum við uppi með ósamræmi í störfum heilbrigðisfulltrúa á mismunandi stöðum á landinu, alveg óháð því hvernig stjórnskipulagið er. Samræming gerist ekki af sjálfum sér, heldur þarf að vinna að leiðbeiningum, verklagsreglum, samræmdu tölvukerfi og fleiri þáttum sem stuðla að samræmingu. Sú leið sem núverandi ríkisstjórn hefur valið til að leysa vandann er blekking og yfirklór yfir þann vanda sem við er að etja. Meginvandinn liggur í að ríkisvaldið hefur ekki stutt við þær yfirstofnanir sem eiga að hafa yfirumsjón með opinberu eftirliti og sinna samræmingu og hafa þær verið fjársveltar í gegnum árin. Meira að segja er núverandi skuldahali eða ófjármagnaður halli Matvælastofnunnar um 1.3 milljarðar í ársbyrjun 2026. Engu fjármagni í fjármálaáætlunum næstu ára er varið til að leiðrétta þennan halla, hvað þá aukið fjármagn til að sinna því verkefni að samræma opinbert eftirlit. Hugsanlega sér ríkisstjórnin tekjumöguleika í auknum eftirlitstekjum frá fyrirtækjum í landinu, nú þegar t.d. fyrirtæki í samtökum ferðaþjónustunnar þurfa að greiða eftirlitsgjöld til tveggja eftirlitsaðila, þ.e. eftirlit með matvælum til Matvælastofnunnar og hins vegar eftirlit til Umhverfis- og orkustofnunar með hollustuháttum í stað eins eftirlits sem núverandi heilbrigðiseftirlit sinna. Þá er líklegt að ríkisstjórnin sjái tekjumöguleika í auknum eftirlitstekjum hjá sveitarfélögunum sem í framtíðinni þurfa að hljóta eftirliti í skólum og leikskólum frá tveimur eftirlitsaðilum þ.e. Matvælastofnun með mötuneytum og Umhverfis- og orkustofnun með hollustuháttum. Það gæti líka verið hugsanlegt að ríkisstjórnin sjái tekjumöguleika í eftirlitstekjum nýrrar stofnunar atvinnuveganna þegar allt opinbert eftirlit með matvælum er komið þangað og stofnunin neyðist til að hækka eftirlitsgjöld í landbúnaði og sjávarútvegi um helming svo ekki verði ósamræmi í eftirlitsgjöldum milli atvinnugreina. En það liggur fyrir að uppsafnað tap Matvælastofnunnar uppá 1.3 milljarða skýrst fyrst og fremst af þeirri staðreynd að eftirlitsgjöld þeirrar stofnunar, hafa engan vegin staðið undir kostnaði og því þurft niðurgreiðslu frá ríkisvaldinu. Aukast þá enn á álögur á sjávarútveginn og landbúnaðinn hér á landi. Það er því áhugavert að sjá framkvæmdastjóra atvinnulífsins fagna auknum álögum á fyrirtæki sem þeir gæta hagsmuna fyrir í stað þess að krefjast þess að ríkisvaldið standi undir þeirri kröfu að samræma opinbert eftirlit og setja fjármagn í það verkefni. Sú leið að gjörbylta fyrirkomulagi opinbers eftirlits hér á landi í þágu meintrar einföldunar í stað þess að viðurkenna vandann og ráðast að rótum hans, er bjarmalandsför í leiðangur sem á eftir að leiða til þjónusturofs í eftirliti með heilnæmum lífsskilyrðum hér á landi. Leiðangur sem hvorki sparar fjármuni né einfaldar kerfið í og er í raun í andstöðu við fyrirkomulag opinbers eftirlits í flestum þeim löndum sem við berum okkur saman við. Og það sem er alvarlegast: byltingin mun ekki leysa þann vanda sem henni er ætlað að leysa. Samræming verður ekki til með því að færa kassa á skipuriti. Hún verður aðeins til með skýrri ábyrgð, faglegri yfirstjórn, fjármögnuðum verkefnum, sameiginlegum verkferlum og raunverulegri framkvæmd. Það er sú vinna sem ríkið hefur vanrækt. Og nú virðist eiga að láta atvinnulífið borga reikninginn. Höfundur er stjórnarmaður í Samtökum heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matvælastofnun Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun