Segir Kúbu næsta á eftir Íran Samúel Karl Ólason skrifar 5. júní 2026 07:51 Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segir að átökunum í Íran ljúki muni Bandaríkjamenn koma við á Kúbu á leiðinni heim. AP/Julia Demaree Nikhinson Bandaríkin beittu í gær Miguel Díaz-Canel, forseta Kúbu, refsiaðgerðum. Auk hans voru eiginkona hans og þrír aðrir einnig beittir refsiaðgerðum en Bandaríkjamenn hafa sett verulegan þrýsting á nágranna sína og hefur Donald Trump hótað hernaðaraðgerðum gegn eyríkinu.
Auk forsetans og eiginkonu hans beinast refsiaðgerðirnar gegn Alejandro Castro Espín, syni Raúl Castro, fyrrverandi forseta Kúbu, og Vilma Espín, fyrrverandi ráðgjafa í varnarmálaráði Kúbu. Þá beinast þær einnig gegn Raúl Alejandro Castro Valis, barnabarni Raúls Castro. Forsetinn fyrrverandi var nýlega ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum. Þegar Trump var spurður að því í gær hvort þessum aðgerðum væri ætlað að fella ríkisstjórn Kúbu sagði forsetinn: „Við viljum bara að þetta sé vel rekið land.“ Hann sagði þjóðina svelta, ekki væri til nein olía eða gas og engir peningar. „Þeir eiga ekkert. Þetta er mjög fallegt land. Þú gætir verið með fallega ferðamannastaði.“ Aðstæður á Kúbu hafa lengi verið slæmar en þær hafa versnað verulega að undanförnu. Bandaríkin hafa um árabil beitt Kúbu viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum en á undanförnum mánuðum hafa Bandaríkjamenn þrýst verulega á ríkisstjórnir Venesúela og Mexíkó og krafist þess að þær hætti að senda olíu til Kúbu. Það hefur leitt til mikils orkuskorts á eyjunni. Sjá einnig: „Fólkið er að öskra: Donald Trump, komdu núna“ Forsetinn var einnig spurður hvort Kúba væri að hruni komin og sagði að það væri „eiginlega þegar hrunið“. Þá bætti hann við: „Við munum ganga frá því, ég vil helst gera einn hlut í einu. Við göngum frá Íran og um leið og það er búið, á leiðinni til baka, munum við koma stuttlega við [á Kúbu]. Við munum sjá um það. Við viljum hjálpa þeim.“ Því næst talaði Trump um hve mikið af fólki frá Kúbu hefði kosið hann og hversu gott fólk þetta væri. Hann sagðist ætla að sjá vel um þau og að þau vildu geta farið aftur til Kúbu. „Við ætlum að gera fólkinu okkar kleift að fara aftur og fjárfesta á Kúbu, ef það vill. Við erum með mjög góðar ætlanir varðandi Kúbu.“ Trump: We’ll take care of the Islamic Republic of Iran and as soon as that's done, on our way back, we'll just make a little brief stop—we'll take care of [Cuba]… We have to get rid of the regime. pic.twitter.com/t0sPW9TF34— Acyn (@Acyn) June 4, 2026
Kúba Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira