Uppsagnir hjá Kviku banka Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. júní 2026 12:34 Ellefu var sagt upp hjá Kviku banka. Vísir/Arnar Ellefu starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Kviku banka eftir að ráðist var í hagræðingaraðgerðir. Alls hefur stöðugildum fækkað um átján það sem af er ári.
Þetta kemur fram í tilkynningu á Keldunni. „Í dag áttu sér stað 11 sársaukafullar uppsagnir og jafnframt hefur verið tekin ákvörðun um að ráða ekki í stöður sem hafa losnað og munu losna á næstu mánuðum. Fækkun starfsfólks hefur náð til nánast allra eininga bankans,“ segir í tilkynningu. Breytt og krefjandi umhverfi kalli á stöðugt aðhald í rekstri, þrátt fyrir umtalsverðan vöxt á flestum sviðum bankans. „Gert er ráð fyrir að þessi fækkun stöðugilda muni leiða til kostnaðarlækkunar sem nemur tæplega 400 milljónum króna á ársgrundvelli. Einskiptiskostnaður vegna uppsagna nemur rúmlega 100 milljónum króna, sem gjaldfærðar verða á öðrum fjórðungi ársins.“ Góður fyrsti ársfjórðungur Í júlí 2025 tilkynntu forsvarsmenn Arion banka og Kviku að bankarnir tveir ætluðu að hefja samrunaviðræður. Ekkert varð af þeirri sameiningu eftir að bankarnir áttu forviðræður við Samkeppniseftirlitið. „Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telja stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna. Stjórnir bankanna hafa því fallið frá samrunaáformum sem upplýst var um í tilkynningu til kauphallar þann 6. júlí 2025,“ sagði í tilkynningu frá Arion banka. Fyrsti ársfjórðungur ársins 2026 var mjög góður í rekstri bankans að sögn Ármanns Þorvaldssonar, forstjóra Kviku. Vaxtatekjur hafi aukist, kostnaðaraðhald skilað sér og að áfram væri góður vöxtur í lykilþáttum starfseminnar.
Kvika banki Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi,“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Fleiri fréttir Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Sjá meira