Greinendur „hissa“ með niðurstöðuna hjá Oculis en mæla enn með kaupum
Greinendur hafa lækkað verðmöt sín á Oculis eftir að ljóst varð að eitt af þremur þróunarlyfjum þess mistókst að ná markmiðum sínum í lykilrannsóknum en taka fram að þrátt fyrir vonbrigðin þá sé virði félagsins einkum byggt á lyfinu Privosegtor (OSC-05), sem er til meðferðar við bráðri sjóntaugabólgu, og mæla enn með kaupum. Líklegt er talið að gengi bréfa Oculis muni í kjölfarið haldast í kringum 15 til 20 dalir á hlut, um og yfir þriðjungi lægra en fyrir helgi.
Tengdar fréttir
Erlendu sjóðastýringarrisarnir sem eru að byggja hratt upp stöðu í Oculis
Erlendir fjárfestingarsjóðir, meðal annars sérhæfðir sjóðastýringarrisar með áherslu á líftækni- og heilbrigðisgeirann, eru að stækka hratt stöðu sína í Oculis og hafa sumir þeirra keypt í félaginu fyrir marga milljarða á allra síðustu vikum og mánuðum. Vaxandi eftirspurn meðal erlendra fjárfesta hefur skilað sér í meiri veltu og hækkun á hlutabréfaverði en Oculis er núna orðið fjórða verðmætasta félagið á íslenskum hlutabréfamarkaði.
Guggenheim metur Oculis hæst allra greinenda í sínu fyrsta verðmati
Bandaríski fjárfestingabankinn Guggenheim hefur bæst í hóp fjölda erlendra fjármálastofnana sem fjalla reglulega um líftæknifyrirtækið Oculis og verðmeta það núna hæst allra greinenda.