Viðskipti innlent

Greiða sér rúm­lega tvo milljarða í arð

Agnar Már Másson skrifar
Guðbjörg Matthíasdóttir og fjölskylda eru stærstu eigendur Ísfélagsins í Vestmannaeyjum.
Guðbjörg Matthíasdóttir og fjölskylda eru stærstu eigendur Ísfélagsins í Vestmannaeyjum. Nasdaq/Vísir/Vilhelm

Hagnaður Ísfélagsins í Vestmannaeyjum nam 2,8 milljörðum króna fyrsta ársfjórðung 2026, sem er umtalsverður viðsnúningur miðað við sama tímabil síðasta ár. Stjórn félagsins hefur ákveðið að greiða hluthöfum út arð vegna síðasta rekstrarárs sem nemur samtals 2,1 milljörðum króna.

Rekstrartekjur félagsins fyrsta ársfjórðung námu um 9 milljörðum króna og skilaði félagið hagnaði upp á 2,8 milljarða króna, samkvæmt nýbirtu ársfjórðungsyfirliti.

Heildareignir félagsins námu samtals 108 milljörðum króna 31. mars 2026. Eigið fé í lok fyrsta ársfjórðungs 2026 var 73,4 milljarðar króna og skuldir og skuldbindingar 36,6 milljarðar króna. Eiginfjárhlutfall var því 66,7 prósent.

Félagið tvöfaldaði í raun tekjur sínar miðað við sama tímabil í fyrra, en þá námu tekjur 4,6 milljörðum króna og félagið skilaði tapi af þeim árshluta upp á 400 milljónir. Það virðist einfaldlega skýrast af auknum tekjum af útgerð og vinnslu.

Fram kemur í reikningnum að á aðalfundi félagsins þann 16. apríl 2026 hafi verið samþykkt að greiða hluthöfum arð sem næmi samtals um 2,1 milljarði króna vegna rekstrarársins 2025. Var hann greiddur hluthöfum þann 15. maí 2026, samkvæmt reikningnum.

Þar af mun rúmlega milljarður hafa farið til ÍV fjárfestingafélags ehf. enda er félagið skráður eigandi 49,2 prósenta hlutafjár í Ísfélaginu og þar af leiðandi stærsti eigandi í félaginu. Fjárfestingafélagið er í eigu fjölskyldu Guðbjargar M. Matthíasdóttur, sem er stærsti hluthafi í Árvakri, sem gefur út Morgunblaðið.

Næststærsti eigandinn er útgerðarfélagið Marteinn Haraldsson ehf. með um 11,4 prósent sem fær því greiddar um 240 milljónir króna í þessari arðgreiðslu. Félagið er meðal annars í eigu Ólafs Helga Marteinssonar, aðstoðarforstjóra Ísfélagsins og fyrrverandi formanns Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×