Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Birgir Olgeirsson skrifar 28. maí 2026 11:17 Skúli Mogensen segir vanda Icelandair liggja dýpra en í kjaradeilu við flugmenn og gagnrýnir flókinn flugflota, dreifðan rekstur og skort á skýrri stefnu. Hann telur félagið þurfa að einfalda reksturinn og selja einingar utan kjarnastarfsemi til að fjármagna endurnýjun flotans. Vísir/Vilhelm Skúli Mogensen, stofnandi WOW air, segir vandamál Icelandair ekki aðeins felast í núverandi samningum við flugmenn heldur í grunnrekstri félagsins, flóknum flugflota og skorti á skýrri stefnu. Hann telur að félagið þurfi að einfalda reksturinn, selja einingar utan kjarnastarfsemi og nota andvirðið til að endurnýja flugflotann.
Málefni Icelandair hafa verið talsvert til umræðu undanfarnar vikur vegna kjaradeilna félagsins við flugvirkja og flugmenn. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair hefur sagt að aflýsingar á áætlunarferðum Icelandair vegna áhafnarskorts séu tilkomnar vegna samstilltra aðgerða flugmanna. Því hafa flugmenn neitað heldur segja þessar aflýsingar alfarið á ábyrgð Icelandair sem ætli sér að treysta á að halda flugáætlun með því að kaupa frídaga af flugmönnum. Icelandair segir hins vegar ríka hefð fyrir sölu frídaga og það sé hluti af kjarasamningum flugmanna. Flugmenn hafi síðast hafnað sölu frídaga árið 2014, þegar þeir voru í kjaradeilu við Icelandair. Skúli Mogensen skrifar á Facebook að óskandi væri að vandamál félagsins væru eingöngu núverandi samningar við flugmenn en staðan sé að hans mati ekki svo einföld. Hann segir vandann bæði stærri og dýpri og vísar til afkomu Icelandair undanfarin ár. Á meðan mörg stór flugfélög hafi skilað methagnaði eftir heimsfaraldurinn hafi uppgjör Icelandair ítrekað verið undir væntingum stjórnenda og markaðarins. „Þessa þróun er erfitt að skrifa á svokallaðar f-stéttir — flugmenn, flugliða og flugvirkja — þó að sjálfsagt megi bæta ýmislegt þar líka,“ skrifar Skúli. Einfalda þurfi flugflotann Skúli segir eitt stærsta vandamál Icelandair vera samsetningu flugflotans. Félagið reki um 50 flugvélar af ólíkum gerðum, meðal annars Boeing 737 MAX, Airbus A321LR, Boeing 757, Boeing 767 og Dash 8-vélar. Skúli Mogensen fagnar fyrstu Airbus A321-þotu Wow Air á Reykjavíkurflugvelli árið 2015.Vilhelm Gunnarsson Slík fjölbreytni kalli á mismunandi þjálfun flugmanna, flugliða og vélvirkja, ólíka varahluti, meira flækjustig í skipulagi og dýrari yfirumsjón. Fyrir lítið flugfélag á alþjóðlegan mælikvarða sé slíkur rekstur að hans mati gríðarlega kostnaðarsamur. Hann segir að algjört forgangsatriði eigi að vera að einfalda flotann verulega og velja annaðhvort Boeing MAX eða Airbus sem framtíðarvél félagsins. Segir félagið þurfa að selja rekstur utan kjarnans Skúli telur einnig að Icelandair sé með of mörg járn í eldinum. Hann nefnir sérstaklega fraktflug, leigustarfsemi, ferðaskrifstofu, rekstur flugherma, fasteignir, innritunar- og handlingsstarfsemi og innanlandsflug sem dæmi um einingar sem falli utan kjarnastarfseminnar. Að hans mati ætti að selja slíkar einingar og setja fókusinn á alþjóðaflug til og frá Íslandi. Hann tekur þó fram að hann sé ekki að tala fyrir því að félagið verði „bútað niður“ til að taka verðmæti út úr rekstrinum. Þvert á móti eigi að nýta söluandvirði rekstrareininga utan kjarnastarfseminnar til að fjármagna endurnýjun flugflotans. Skúli segir mikið af öflugu og reynslumiklu fólki starfa hjá Icelandair, þar á meðal flugmenn, en félagið hafi reynt að gera of mikið á of mörgum sviðum. Það hafi bitnað á rekstrinum. Skúli Mogensen stofnaði WOW air árið 2011 og byggði félagið upp í eitt stærsta lággjaldaflugfélag Íslands með hröðum vexti á Norður-Atlantshafi. Félagið lenti síðar í rekstrarerfiðleikum og hætti starfsemi árið 2019.vísir/vilhelm Hann telur að með skýrari fókus og einfaldari rekstri sé hægt að byggja upp arðbært félag til framtíðar, þótt slíkar breytingar yrðu sársaukafullar til skamms tíma. „Nauðsynlegt er að taka eitt skref aftur á bak áður en hægt er að taka tvö skref áfram,“ skrifar Skúli. Hann segist skrifa færsluna vegna verulegra áhyggja af stöðu Icelandair og þeim áhrifum sem áframhaldandi veik staða félagsins gæti haft á ferðaþjónustu á Íslandi og lífsgæði landsmanna almennt.
Icelandair Kjaramál Flug Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira