Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Samúel Karl Ólason skrifar 28. maí 2026 09:25 E. Jean Carroll fyrir utan dómshús í New York árið 2024. Hún er 82 ára gömul. AP/Eduardo Munoz Alvarez Kona sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, var árið 2023 dæmdur fyrir að brjóta á kynferðislega er nú til rannsóknar hjá dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. E Jean Carroll höfðaði mál gegn Trump og sakaði hann um nauðgun og ærumeiðingar en það mál endaði á því að honum var gert að greiða henni fimm milljónir dala. Honum var í öðru máli gert að greiða henni 83 milljónir dala.
Carroll sakaði Trump um að hafa nauðgað sér í mátunarklefa í fatabúð í New York árið 1996 og um ærumeiðingar með því að hafa sakað hana um lygar þegar hún skrifaði um atvikið í bók. Trump neitaði sök. Kviðdómendur í málinu höfnuðu ásökun Carroll um að Trump hefði nauðgað henni en töldu hann sekan um að hafa misnotað hana kynferðislega. Hann var einnig fundinn sekur um ærumeiðingar. Sjá einnig: Trump fundinn sekur um kynferðisofbeldi og ærumeiðingar Samkvæmt heimildum CNN er Carroll nú til rannsóknar hjá dómsmálaráðuneytinu, þar sem margir af pólitískum andstæðingum Trumps og fólk sem forsetanum er illa við hafa verið til rannsóknar. Trump hefur krafist þess opinberlega að ráðuneytið rannsaki og ákæri andstæðinga sína. James Comey, fyrrverandi yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna, og Letitia James, dómsmálaráðherra New York-ríkis, voru ákærð af ráðuneytinu nokkrum vikum eftir að Trump krafðist þess fyrst opinberlega að Pam Bondi, fyrrverandi ráðherra sem starfaði áður sem einkalögmaður Trumps, beitti sér gegn andstæðingum sínum. Bæði þau mál voru felld niður en Comey hefur verið ákærður aftur. Fleiri hafa verið til rannsóknar hjá ráðuneytinu. Rannsóknin gegn Carroll er sögð snúast um það hvort hún hafi framið meinsæri í tengslum við tvö dómsmál hennar gegn forsetanum. Hún sagði við vitnaleiðslur árið 2022 að hún hefði ekki fengið utanaðkomandi fjárhagslega hjálp við lögsóknir sínar en seinna kom þó í ljós að auðjöfurinn Reid Hoffman greiddi einhverja reikninga hennar. Rannsóknin er sögð á höndum alríkissaksóknara í Chicago, samkvæmt frétt New York Times. Dómsmál Carroll gegn Trump fóru fram í New York. Hoffmann rekur þó óhagnaðardrifið félag í Chicago sem mun hafa verið notað til að veita Carroll fé. Árið 2022 sagði Carroll við vitnisburð að hún hefði enga fjárhagsaðstoð fengið við lögsóknirnar gegn Trump. Tveimur vikum áður en réttarhöldin hófust sögðu lögmenn hennar bæði dómaranum og lögmönnum Trumps að þau hefðu fengið fjármagn frá félagi Hoffmanns en þeir sögðu hana aldrei hafa rætt við neinn sem tengdist því félagi. Þá héldu lögmenn Trumps því fram að Carroll og hennar fólk hefðu reynt að hylma yfir sannleikann í um sex mánuði. Aðrar vitnaleiðslur fóru þá fram en þær hafa ekki verið opinberaðar. Þegar réttarhöldin hófust svo lýsti dómarinn því yfir að hann hefði enga ástæðu til að efast um trúverðugleika Carroll og meinaði lögmönnum Trumps að spyrja hana frekar út í peningana við réttarhöldin. Forsetinn hefur beðið Hæstarétt Bandaríkjanna um að taka áfrýjanir sínar gegn Carroll til umfjöllunar. Áfrýjunum hans hefur verið hafnað á lægri stigum réttarkerfisins. Sakaður um að haga sér enn eins og einkalögmaður Todd Blanche, sem er nú starfandi dómsmálaráðherra og var einnig áður einkalögmaður Trumps, er sagður hafa haldið sér frá rannsókninni gegn Carroll. Hann hefur verið sakaður af þingmönnum og öðrum um að haga sér enn eins og einkalögmaður Trumps. Hefur það sérstaklega verið sagt í tengslum við stofnun nýs skaðabótasjóðs sem nota á til að greiða bandamönnum Trumps skaðabætur fyrir meintar ofsóknir af vopnvæddu réttarkerfi. Hann var stofnaður í tengslum við samkomulag sem dómsmálaráðuneytið, undir stjórn Blanche, gerði við forsetann sjálfan vegna lögsóknar hans gegn Skattinum. Blanche neitaði að útiloka í gær að fólk sem hefði gerst sekt um að beita lögregluþjóna ofbeldi myndi fá greitt úr sjóðnum.
Bandaríkin Donald Trump Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Trump gert að greiða E. Jean Carroll 83,3 milljónir dala Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna verður gert að greiða E. Jean Carroll 83,3 milljónir bandaríkjadala í fyrir ærumeiðingar sem nemur rúmum ellefu milljörðum íslenskra króna. 26. janúar 2024 22:57 Meiðyrðamáli Trump gegn E. Jean Carroll vísað frá Meiðyrðamáli Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, gegn pistlahöfundinum E. Jean Carroll var vísað frá af alríkisdómara í New York í gær. Trump höfðaði mál gegn Carrol vegna ummæla hennar um að hann hefði nauðgað henni. 8. ágúst 2023 07:26 Trump kærir konuna sem hann braut á kynferðislega Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur kært E Jean Carroll sem hann var dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega á. Carroll hefur sagt Trump hafa nauðgað sér. 28. júní 2023 11:42 Trump fundinn sekur um kynferðisofbeldi og ærumeiðingar Kviðdómur í New York dæmdi Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sekan um kynferðisofbeldi og ærumeiðingar í garð E. Jean Carroll í dag. Trump var dæmdur til þess að greiða Carroll fimm milljónir dollara í miskabætur, jafnvirði tæpra 690 milljóna íslenskra króna. 9. maí 2023 19:16 Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira
Trump gert að greiða E. Jean Carroll 83,3 milljónir dala Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna verður gert að greiða E. Jean Carroll 83,3 milljónir bandaríkjadala í fyrir ærumeiðingar sem nemur rúmum ellefu milljörðum íslenskra króna. 26. janúar 2024 22:57
Meiðyrðamáli Trump gegn E. Jean Carroll vísað frá Meiðyrðamáli Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, gegn pistlahöfundinum E. Jean Carroll var vísað frá af alríkisdómara í New York í gær. Trump höfðaði mál gegn Carrol vegna ummæla hennar um að hann hefði nauðgað henni. 8. ágúst 2023 07:26
Trump kærir konuna sem hann braut á kynferðislega Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur kært E Jean Carroll sem hann var dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega á. Carroll hefur sagt Trump hafa nauðgað sér. 28. júní 2023 11:42
Trump fundinn sekur um kynferðisofbeldi og ærumeiðingar Kviðdómur í New York dæmdi Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sekan um kynferðisofbeldi og ærumeiðingar í garð E. Jean Carroll í dag. Trump var dæmdur til þess að greiða Carroll fimm milljónir dollara í miskabætur, jafnvirði tæpra 690 milljóna íslenskra króna. 9. maí 2023 19:16