Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Sindri Sverrisson skrifar 24. maí 2026 12:31 Hvorir fagna í dag, West Ham- eða Tottenham-menn? Getty/Rob Newell Áætlað er að rúmir 43 milljarðar króna séu í húfi í baráttunni á milli West Ham og Tottenham í dag um að forðast fall úr ensku úrvalsdeildinni. Í lokaumferðinni er einnig afar spennandi barátta um Evrópusæti. Lokaumferðin fer fram klukkan 15 í dag og eru allir tíu leikirnir í beinni útsendingu á rásum Sýnar auk þess sem fylgst er með þeim öllum samtímis í Doc Zone á Sýn Sport. Lokaumferðin kl.15: Brighton - Man. Utd (Sýn) Burnley - Wolves (Sýn Sport Ísland) Crystal Palace - Arsenal (Sýn Sport 3) Fulham - Newcastle (Sýn Sport Ísland 2) Liverpool - Brentford (Sýn Sport 4) Man. City - Aston Villa (Sýn Sport 2) Forest - Bournemouth (Sýn Sport Ísland 3) Sunderland - Chelsea (Sýn Sport 6) Tottenham - Everton (Sýn Sport 5) West Ham - Leeds (Sýn Sport Ísland 4) Doc Zone er á Sýn Sport kl. 14.40 og Sunnudagsmessan klukkan 20. Arsenal er Englandsmeistari og fær bikarinn afhentan eftir leik sinn við Crystal Palace í London í dag. Manchester City endar í 2. sæti og kveður Pep Guardiola með leik við Aston Villa, og Manchester United endar í 3. sæti en mætir Brighton á útivelli í fyrsta leiknum eftir að tilkynnt var um langtímasamning við Michael Carrick. Þá eru Burnley og Wolves fallin en Úlfarnir gætu reyndar komið sér úr botnsætinu með sigri í leik liðanna í dag. Hjá öllum öðrum liðum gæti orðið breyting í dag, þó misalvarleg verði. Mest er í húfi hjá West Ham og Tottenham en BBC áætlar að fall úr deildinni þýði tekjumissi upp á 261 milljón punda eða rúmar 43 milljónir króna. Þar er staðan einföld. West Ham verður að vinna Leeds og treysta á að Tottenham tapi gegn Everton. Annars mun Tottenham halda sér uppi og West Ham falla. Markatölumunurinn er of mikill til að það hjálpi West Ham að Tottenham geri jafntefli. Þá er einnig mikið í húfi hjá Liverpool að tryggja sér endanlega sæti í Meistaradeild Evrópu, með stigi gegn Brentford, og ef Liverpool kemst upp fyrir Aston Villa þá fær liðið í 6. sæti einnig sæti í Meistaradeild Evrópu. Þetta gildir ekki ef Villa endar í 4. sæti. Standings provided by Sofascore Hér að neðan má sjá möguleika liðanna sem keppast um síðustu Evrópusætin. Hafa ber í huga að ef Liverpool vinnur Brentford og Villa tapar gegn Manchester City, svo Villa endar í 5. sæti, þá fær liðið í 6. sæti að fara í Meistaradeild Evrópu. Annars fer það lið í Evrópudeildina. Liðið í 7. sæti fer einnig í Evrópudeildina og liðið í 8. sæti í umspil Sambandsdeildarinnar. Aston Villa: Dugar stig til að enda í 4. sæti en gæti í versta falli endað í 5. sæti. Það dugar til sætis í Meistaradeild Evrópu sem Villa-menn hafa sömuleiðis tryggt sér sem Evrópudeildarmeistarar. Liverpool: Dugar stig gegn Brighton á heimavelli til að enda í 5. sæti og komast í Meistaradeild Evrópu. Gæti endað í 6. sæti með tapi ef Bournemouth vinnur stóran sigur gegn Nottingham Forest á útivelli en sex marka sveiflu þyrfti til (ef Liverpool og Bournemouth enda með nákvæmlega sama fjölda stiga, skoraðra marka og marka fengin á sig, þá mætast þau í sérstökum umspilsleik um sæti í Meistaradeild Evrópu). Bournemouth: Þarf á stórsigri að halda gegn Forest og tapi Liverpool gegn Brentford, til að ná 5. sætinu af Liverpool. Bournemouth er öruggt um að lágmarki 7. sæti og þar með sæti í Evrópudeildinni og gæti aðeins misst 6. sætið, mögulegt Meistaradeildarsæti, ef liðið tapar og Brighton vinnur Manchester United. Brighton: Heldur í vonina um sæti í Meistaradeild Evrópu með sigri gegn Manchester United. Þá þyrftu samt Bournemouth og Aston Villa að tapa, og Liverpool að vinna. Sigur tryggir Brighton að lágmarki 7. sæti og þar með sæti í Evrópudeildinni en tapi liðið gæti það misst af Evrópusæti. Chelsea: Er í 8. sæti sem stendur og það dugar til að fara í umspil Sambandsdeildarinnar. Gæti með sigri og mögulega jafntefli í besta falli komist upp fyrir Brighton í 7. sæti og þannig inn í Evrópudeildina en dregist niður í 10. sæti með tapi. Brentford: Á góðar líkur á Evrópusæti með sigri gegn Liverpool en þyrfti að treysta á að Chelsea vinni ekki eða að Brighton tapi. Sunderland: Gæti í besta falli komist upp í 7. sæti með sigri og þannig inn í Evrópudeildina en þarf að treysta á að tvö af Brentford, Chelsea og Brighton missi af stigum (nær ekki Brighton nema að Brighton tapi en getur náð Brentford og Chelsea ef þau gera jafntefli). Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Golf Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Fleiri fréttir Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Sjá meira
Lokaumferðin kl.15: Brighton - Man. Utd (Sýn) Burnley - Wolves (Sýn Sport Ísland) Crystal Palace - Arsenal (Sýn Sport 3) Fulham - Newcastle (Sýn Sport Ísland 2) Liverpool - Brentford (Sýn Sport 4) Man. City - Aston Villa (Sýn Sport 2) Forest - Bournemouth (Sýn Sport Ísland 3) Sunderland - Chelsea (Sýn Sport 6) Tottenham - Everton (Sýn Sport 5) West Ham - Leeds (Sýn Sport Ísland 4) Doc Zone er á Sýn Sport kl. 14.40 og Sunnudagsmessan klukkan 20.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni Íslenski boltinn „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Golf Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Fleiri fréttir Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Sjá meira