Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Agnar Már Másson skrifar 23. maí 2026 10:38 Ný skýrsla varpar ljósi á eignarhald í sjávarútvegi. Tuttugu stærstu fiskiútgerðir Íslands eiga yfir 400 milljarða króna í öðrum félögum, aðallega í öðrum útgerðum en einnig í íslenskum og erlendum fyrirtækjum sem ekki tengjast sjávarútvegi.
Ný skýrsla sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann fyrir atvinnuvegaráðuneytið að beiðni Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, og annarra meirihlutaþingmanna varpar ljósi á eignarhald 20 stærstu útgerðarfélaga landsins, og svokallaðra „tengdra aðila“, í íslensku atvinnulífi. Þar má sjá hvernig stórir aðilar í sjávarútvegi, t.d. Brim, Samherji eða Síldarvinnslan svo eitthvað sé nefnt, hafa með beinni eignatöku, dótturfélögum og svokölluðum krosseignatengslum komið sér upp eins konar eignarhaldsvef. Raunar hafa stærstu kvótaeigendur kastað neti sínu langt út fyrir sjávarútveginn sjálfan, og eiga sumir með beinum eða óbeinum hætti hlut í fasteignafélögum, matvælaframleiðslu og jafnvel flugfélagi. Félög Guðmundar eiga mest Samkvæmt skýrslunni áttu samstæður tuttugu stærstu útgerðanna í lok árs 2024 eignir að andvirði 406,3 milljarða króna, þar af 228 milljarða króna í öðrum útgerðum, 129 milljarða í öðrum íslenskum fyrirtækjum (sem ekki eru í sjávarútvegi), og 50 milljarða í erlendum félögum. Fjárfestingar þessara tuttugu félaga frá 2014-2024 námu 240 milljörðum hvort sem um ræðir útgerðir og íslensk félög eða erlend. Þorri þessara eigna er hjá fjórum stærstu félögunum: Brim á um 73 milljarða samtals, Útgerðarfélag Reykjavíkur um 66 milljarða, Fisk Seafood á um 64 milljarða og Síldarvinnslan 63. Sömu eigendur? Þrátt fyrir að yfirlýst markmið skýrslunnar hafi verið að kortleggja „raunverulegt eignarhald“ í sjávarútvegi virðast mörg þessara félaga vera í eigu sama fólks en samt listuð hvert í sínu lagi. Athygli vekur til dæmis að Brim og Útgerðarfélag Reykjavíkur séu hér skilgreind sem sitt hvort félagið en ÚR er allt í eigu Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims, sem er svo stærsti eigandinn í Brim (49,5 prósent). Þessi tvö félög eiga samtals um þriðjung af téðum 400 milljarða króna eignum sem skýrslan fjallar um. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brim.Vísir/Vilhelm Sömuleiðis má benda á að Síldarvinnslan eigi allan hlut í útgerðarfélaginu Vísi ehf. og Bergi-Hugin ehf. Öll þessi þrjú félög eru skráð sem sitt eigið félag og rata öll á lista yfir 20 stærstu útgerðirnar. Síldarvinnslan er að stærstum hluta í eigu Samherja annars vegar og Kjálkaness hins vegar. Í skýrslunni er tekið fram að aðeins sé horft á fjárfestingar þeirra tuttugu tilteknu félaga sem fengu kvótann úthlutaðan, en ekki fjárfestingar samstæðnanna í heild. Hver sjálfstæður leyfishafi, t.d. útgerð með eigið einkennisnúmer og kvóta, er greindur út af fyrir sig. Kasta út breiðu neti Stærstu kvótaeigendurnir eiga gjarnan fjölbreytt safn félaga í öðrum rekstri, hvort sem um ræðir fasteignir eða matvælaframleiðslu svo eitthvað sé nefnt. Brim á til dæmis fasteignafélagið Breiðina ehf. Félagið á einnig fjölda dótturfélaga erlendis, svo sem félögin S-13 Holding, Icelandic Japan og Icelandic China HoldCo. Einnig rekur Brim flutningafyrirtækið Brim Shipping. Skinney-Þinganes á útgerðirnar Hvanney og Vigur en einnig kúabúið Selbakka. Félagið á svo fjárfestingafélagið Þingey, sem á svo byggingarfélagið Miðhöfn og einnig hlut í Icelandair. Augljósasta dæmið er líklegast FISK Seafood en það er að fullu í eigu Kaupfélags Skagfirðinga (KS), sem meðal annars á Mjólkursamsöluna og Kjarnafæði Norðlenska. Síldarvinnslan á einnig útgerðir erlendis í gegnum Arctic Fish á Noregi og Ísfélagið á erlendar útgerðir í gegnum Austur Holding.
Sjávarútvegur Alþingi Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira