Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Agnar Már Másson skrifar 23. maí 2026 07:26 Viðbragðsaðilar á vettvangi í Sjansi í Norður-Kína. Getty Hið minnsta níutíu eru látnir eftir gassprengingu sem varð í kolanámu í norðanverðu Kína í gær. Á annan hundrað hafa verið fluttir til aðhlynningar en björgunaraðgerðir standa enn yfir. Lögregla hefur handtekið yfirmenn í kolanámunni.
Hundruð viðbragðsaðila voru sendir á vettvang eftir að sprengingin varð í Liushenyu-kolanámunni en hún er í bænum Tsjansí í héraðinu Sjansi. Náman er rekin af fyrirtækinu Tongzhou Group. Rúmlega hundrað manns hafa verið fluttir á sjúkrahús vegna sprengingarinnar og björgunaraðgerðir standa enn yfir, að því er ríkismiðillinn Xinhua greinir frá. Sprengingin varð í gær klukkan 19.29 að staðartíma í Sjansi (11.29 að íslenskum tíma) en um 247 starfsmenn eru sagðir hafa verið við störf frá þeim tíma. Forseti landsins, Xi Jinping, hefur gefið út yfirlýsingu vegna atviksins og kallaði eftir því að hlúa að hinum slösuðu og leita þeirra sem enn væri saknað. Í ríkismiðlinum Xinhua kemur fram að Xi, sem er einnig formaður kínverska kommúnistaflokksins, biðji stjórnvöld um að rannsaka orsök slyssins og draga hina ábyrgu til ábyrgðar. Stjórnvöld hafa sent 345 manns úr sex björgunarsveitum til að aðstoða við aðgerðirnar. Námuna sem um ræðir má sjá merkta á kortinu hér að neðan. Yfirmenn í kolanámunni hafa verið handteknir en orsök gassprengingarinnar hefur ekki enn verið gefin upp. Ríkisfjölmiðlar greina frá því að magn kolmónoxíðs hafi farið yfir leyfileg mörk. Kolmónoxíð er mjög eitruð en lyktarlaus lofttegund. Sjansi, eitt af fátækari héruðum Kína, er þekkt sem kolanámuhöfuðborg landsins. Í upphafi 21. aldar voru banaslys algeng í kolanámuiðnaði Kína en öryggisstaðlar hafa verið hertir á undanförnum árum. Slys eiga sér þó enn stað. Árið 2023 létust 53 þegar kolanáma hrundi í héraðinu Innri-Mongólíu í norðurhluta landsins. Árið 2009 létust meira en 100 í sprengingu í námu í Heilongjiang-héraði í norðausturhlutanum. Kína er stærsti kolanotandi heims og sá sem losar mest af gróðurhúsalofttegundum, en landið hefur á undanförnum árum byggt upp innviði á methraða fyrir endurnýjanlega orkugjafa.
Kína Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Skafið og saltað Veður Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira