Upplifði mikla þjáningu yfir lengri tíma Aron Guðmundsson skrifar 23. maí 2026 09:33 Karlotta Ósk Óskarsdóttir er sannkallaður ofurhlaupari Vísir/Lýður Fæstir myndu íhuga að taka þátt í tíu sólarhringa keppnishlaupi en ofurhlauparinn Karlotta Ósk Óskarsdóttir lét slag standa. Eftir mikla þjáningu og yfir sjö hundruð og fjörutíu kílómetrum síðar íhugar hún nú að láta slag standa aftur. Reynslunni ríkari.
Karlotta hljóp alls 742,6 kílómetra á dögunum tíu og sló um leið þrjú Íslandsmet, meðal annars yfir lengstu vegaland Íslendings í keppnishlaupi. Í keppninni var hlaupið á 785 metra langri braut í almenningsgarði í Sófíu í Búlgaríu, sami hringur, aftur og aftur, og þurftu keppendur að hlaupa sem lengst innan daganna tíu ásamt því að huga að svefni og næringu. „Þetta var eiginlega bara áskorun sem ég setti á sjálfa mig,“ segir Karlotta í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Ég vildi bara prófa þetta eftir að hafa tekið sex daga hlaup áður. Sérstaklega vegna þess að enginn Íslendingur hafði tekið tíu daga hlaup. Mér fannst þetta bara ótrúlega áhugavert, að henda mér í djúpu laugina og prófa þetta.“ „Þetta er svo ofboðslega erfitt, er svo vont og rosalega langur tími í þessum þjáningum. Að þurfa fara af stað, sofa ógeðslega lítið og vera í raun bara ógeðslega þreyttur og þjáður en halda samt áfram.“ En svona í ljósi þessarar þjáningar. Hvað er það sem drífur mann áfram í svona hlaup? „Það er bara að gera eitthvað svona ógeðslega erfitt og komast yfir það. Komast í gegnum það og ljúka því. Ég held ég sé orðin ótrúlega sterk eftir að hafa gert þetta. Mér finnst núna bara allt auðvelt í samanburði við þetta.“ Karlotta náði ekki markmiði sínu að hlaupa 800 kílómetra en nógu langt fór hún þó í augum hins almenna áhugamanns. Hún gæti því þurft að fara aftur í tíu daga hlaup. „Ég var búin að skrá mig í næsta hlaup áður en ég fór í þetta tíu daga hlaup. Sem voru kannski mistök, við sjáum til. Ég er að fara í sex daga hlaup í byrjun ágúst. Fjórum dögum styttra. Bara sex dagar. Þetta hlýtur að verða auðvelt? „Þetta verður piece of cake. En ég ætla ekki að fara með nein markmið. Bara fara og hafa gaman.“ Viðtalið við Karlottu má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Hlaup Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira